Johnson sloppinn fyrir horn en endanlegrar skýrslu um veisluhöld beðið

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir niðurstöðu bráðabirgðaskýrslu sérstaks saksóknara um veisluhöld í Downingstræti sýna að stjórnvöldum sé treystandi til að standa við skuldbindingar sínar. Margir þingmenn eru á öðru máli.

boris johnson þing
Auglýsing

Veislu­höld í Down­ingstræti 10 á tímum útgöngu­banns eða strangra sótt­varna­að­gerða voru óvið­eig­andi og skortur var á for­ystu­hæfi­leikum og dóm­greind, bæði hjá starfs­fólki í Down­ingstræti sem og á skrif­stofu rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Þetta er meðal nið­ur­staðna í tólf síðna bráða­birgða­skýrslu Sue Gray, sér­staks sak­sókn­ara, um partýstandið í Down­ingstræti og öðrum húsa­kynnum rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sem birt var í gær.

­Skýrsl­unnar hefur verið beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu. Búist var við nið­ur­stöðum um miðja síð­ustu viku en þegar lög­reglan í Lund­únum hóf rann­sókn á mögu­legum brotum á sótt­varn­ar­reglum óskaði hún eftir því Gray að vísa sem minnst í þær sam­komur í skýrsl­unni sem lög­reglan hefur til rann­sókn­ar.

Heims­far­ald­ur, skortur á leið­toga­hæfni og skað­leg drykkju­menn­ing

Greina má þrjú megin þemu í nið­ur­stöðum Gray. Í fyrsta lagi nefnir hún heims­far­ald­ur­inn og að erfitt hafi verið að rétt­læta sam­komur á sama tíma og almenn­ingur bjó við harðar sam­komu­tak­mark­an­ir. Í öðru lagi segir hún greini­legan skort hafa verið á for­ystu­hæfi­leikum sem leiddi meðal ann­ars til þess að gleð­skap­ur­inn gekk of langt í sumum til­vik­um. Í þriðja lagi gagn­rýnir hún drykkju­menn­ingu á vinnu­stöðum rík­is­stjórn­ar­inn­ar. „Óhóf­leg neysla áfengis er óvið­eig­andi á vinnu­stöðum öllum stund­um,“ segir m.a. í skýrslu Gray.

Auglýsing
„Ég skil þetta og mun laga þetta,“ sagði Boris John­son for­sæt­is­ráð­herra þegar hann sat fyrir svörum á breska þing­inu í gær. Eins og við var að búast var líf og fjör í þingsaln­um. Ian Black­ford, leið­togi skoska þjóð­ar­flokks­ins, var vísað út úr þing­sal fyrir að saka John­son um lyg­ar. „For­sæt­is­ráð­herr­ann hefur logið og blekkt þing­ið, hann verður nú að segja af sér,“ sagði Black­ford, sem var vísað úr þing­sal eftir að hann afþakk­aði boð for­seta þings­ins um að draga orð sín til baka.

En það voru ekki aðeins póli­tískir and­stæð­ingar John­son sem sóttu fast að honum heldur einnig flokks­systk­ini með Ther­esu May, for­vera John­sona á for­sæt­is­ráð­herra­stóli, í broddi fylk­ing­ar.

May sagði það koma skýrt fram í skýrslu Gray að Down­ingstræti 10 fór ekki eftir settum regl­um. „Annað hvort hefur hæst­virtur félagi minn ekki lesið reglu­gerð­ina eða skilur ekki hvað hún þýddi fyrir aðra, eða; hélt að hún ætti ekki við þau í Down­ingstræti 10. Hort var það?“ spurði May.

John­son túlkar nið­ur­stöðu skýrsl­unnar á annan hátt og hyggst hann halda ótrauður áfram. Hann er búinn að biðj­ast afsök­unar og að hans mati snýst málið um hvort stjórn­völdum sé treystandi til að standa við sitt. „Og ég segi: Já, við getum það,“ sagði John­son í þing­sal í gær við litla hrifn­ingu þing­manna.

End­an­leg rann­sókn verður gerð opin­ber

12 sam­komur eru til rann­sóknar hjá lög­reglu en í skýrslu Gray er fjallað um að minnsta kosti 16. Gray segir að henni hafi verið settar miklar skorður vegna lög­reglu­rann­sókn­ar­innar og því er enn nokkuð í að end­an­leg og „þýð­ing­ar­mik­il“ skýrsla verði gefin út.

Sue gray, sérstakur saksóknari. Mynd: Ríkisstjórn Bretlands.

John­son var tregur til að svara því hvort end­an­lega skýrsla yrði gerð opin­ber en eftir þrýst­ing úr mörgum áttum bár­ust þær upp­lýs­ingar frá frá Down­ingstræti í gær­kvöld að loka­skýrslan verður gerð opin­ber um leið og lög­reglu­rann­sókn lýk­ur.

En þar er ekki öll sagan sögð. Jim Pickard, stjórn­mála­skýr­andi hjá Fin­ancial Times, hefur eftir tals­manni John­son að komi til þess að lög­regla beiti sektum vegna brota á sótt­varna­reglum - þar á meðal gegn for­sæt­is­ráð­herra - muni Down­ingstræti ekki upp­lýsa um það.

John­son sé aðeins að reyna að bjarga eigin skinni

Keir Star­mer, leið­togi Verka­manna­flokks­ins, sagði engan vafa leika á því að John­son sæti glæpa­rann­sókn. Star­mer segir John­son ein­blína á að bjarga eigin skinni frekar en að veita lyk­il­málum athygli.

„For­sæt­is­ráð­herr­ann braut regl­urn­ar. Foræstis­ráð­herra laug um að hafa brotið regl­urn­ar,“ segir Star­mer og segir hann John­son sæta glæpa­rann­sókn vegna eigin hegð­un­ar. Star­mer seg­ist marg­sinnis hafa verið þeirrar skoð­unar síð­ast­liðin tvö ár að John­son ætti að segja af sér en nú geti hann ekki haldið aftur af sér leng­ur.

Þing­menn Íhalds­flokks­ins hafa margir hverjir sagst ætla að bíða nið­ur­stöðu rann­sóknar Gray áður en þeir gera upp hug sinn varð­andi póli­tíska stöðu John­son. 1922-­nefnd flokks­ins kom saman á fundi í gær­kvöldi þar sem John­son reyndi að full­vissa flokks­menn um hæfi sitt til að leiða rík­is­stjórn­ina áfram.

Nadine Dorries mennta­mála­ráð­herra er ekki á meðal þeirra sem John­son þarf að sann­færa, svo mikið er víst. Hún full­yrti í við­tali í gær eftir að skýrslan var birt að for­sæt­is­ráð­herr­ann væri ekki að ljúga, þrátt fyrir að yfir 300 myndir frá lög­reglu sýni fram á veislu­höld sem upp­fylltu ekki kröfur um gild­andi sótt­varna­tak­mark­an­ir.

„Ég veit ekk­ert um neinar sam­komur,“ sagði Dorries, sem telur að hún megi ekk­ert gefa upp fyrr en rann­sókn lög­reglu er lok­ið.

Van­traust­s­til­laga enn mögu­leg

Óljóst er hvort bráða­birgða­skýrsla Gray dugi flokks­mönnum til að gera upp hug sinn. Skýrslan vekur í raun upp fleiri spurn­ingar en svör og ljóst er að bíða þarf nið­ur­stöðu lög­reglu­rann­sóknar þar til póli­tísk fram­tíð Boris John­son liggur fyr­ir.

Mögu­leiki á van­traust­s­til­lögu er enn fyrir hendi en svo að hún verði afgreidd þarf 1922-­nefnd Íhalds­flokks­ins, sem sér um for­ystu­mál flokks­ins, að ber­ast bréf frá 54 þing­mönnum svo atkvæða­greiðsla um um van­traust fari fram. Íhalds­flokk­ur­inn er með 359 þing­sæti svo 15 pró­sent þing­manna flokks­ins þurfa að leggja fram van­traust­stilögu svo hún verði tekin til með­ferð­ar. Þó nokkur fjöldi bréfa hefur þegar borist en sam­kvæmt venju lætur for­maður nefnd­ar­innar ekk­ert uppi fyrr en til­skyldum fjölda til að leggja fram van­traust­s­til­lögu hefur verið náð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnErla María Markúsdóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar