Kínverskar dyr opnast upp á gátt fyrir íslenska neytendur

k.nahur_.in2_.jpg
Auglýsing

Íslend­ingar hafa nú fengið toll­frjálsan aðgang að risa­vöxnum kín­verskum mark­aði og geta verslað að vild toll­frjálst hinar ýmsu vör­ur, þar á meðal raf­tæki, fatnað og ýmis­legt fleira. Þetta er ekki síst hægt í gegnum stórar vef­versl­an­ir, eins og Ali­baba.com, sem hafa marg­vís­legar alþjóð­legar vörur til sölu á góðu verði. ­Frí­versl­un­ar­samn­ing­ur­inn tók gildi 1. júlí síð­ast­lið­inn en hann kveður á um nið­ur­fell­ingu tolla á öllum helstu útflutn­ings­­­af­urðum Íslend­inga, í flestum til­vikum frá upp­hafs­degi gild­is­töku samn­ings­ins. Það er að með­al­tali um 10 til 20 pró­senta lækkun á vörum frá því sem var fyrir gild­is­töku samn­ing­ins á öllum vörum sem koma frá Kína og voru áður toll­skyld­ar.

Allar sjáv­ar­af­urðir verða toll­frjáls­ar, en algengir tollar á þeim eru á bil­inu 10-12%. Tollar á fáeinum vörum falla niður í áföng­um, á fimm eða tíu árum. Um 90% útflutn­ings til Kína eru sjáv­ar­af­urð­ir. Líkt og í öðrum frí­versl­un­ar­samn­ingum fellir Ísland niður tolla á öllum vörum, að und­an­skildum ákveðnum land­bún­að­ar­af­urð­um. Um 70% af tolla­línum í íslensku toll­skránni bera nú þegar engan toll, sam­kvæmt upp­­­lýs­ingum frá toll­stjóra.

Mikil tæki­færi



Áhrif samn­ings­ins á neyt­enda­markað og hefð­bundin dag­leg við­skipti ein­stak­linga og minni fyr­ir­tæki gætu orðið mikil ef Íslend­ingar nýta sér þau tæki­færi sem í samn­ingnum fel­ast. Tollar falla niður á öllum helstu raf­tækj­um, fatn­aði og ýmsum öðrum vörum sem fólk kaupir dags dag­lega í búðum hér á landi. Í ljósi þess hvernig vef­verslun hefur verið að þró­ast í Kína þá felur samn­ing­ur­inn í sér mikla opnun í vef­versl­un, ekki síst í gegnum vef­versl­an­irnar á vefslóð­unum Ali­baba.com og Ali­ex­press.com, báðar undir sama hatti, en eitt mesta úrval sem fyr­ir­finnst á vefn­um. Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka versl­unar og þjón­ustu, segir samn­ing­inn vissu­lega opna stórar dyr fyrir ein­stak­linga og fyr­ir­tæki hér á landi og að hann eigi, ef allt er eðli­legt, að leiða til þess að vöru­verð lækki. „Við höfum verið að berj­ast fyrir því að vöru­gjöld séu einnig skoðuð sér­stak­lega, lækkuð og end­ur­skoð­uð. Efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra hefur sýnt áhuga á þessum málum og von­andi líður ekki langur tími þar til vöru­gjöldin hafa einnig verið lækk­uð, til hags­bóta fyrir neyt­end­ur,“ segir Andr­és.

Hann segir að erfitt sé að greina nákvæm­lega hver áhrifin af samn­ingnum við Kína verða, en óum­deilt sé að mikil tæki­færi geti falist í honum fyrir íslenska neyt­end­ur. „Von­andi styrkir þessi samn­ingur íslenskt atvinnu­líf til fram­tíðar lit­ið,“ segir Andr­és. Dæmi um mikil áhrif samn­ing­ins er að tollur á fatnað frá Kína, um 15 pró­sent, fellur nið­ur. Þannig ætti verð á fatn­aði að lækka hratt, með til­heyr­andi áhrifum á vísi­tölu neyslu­verðs og þar með verð­tryggðar skuld­bind­ing­ar.

Auglýsing

[em­bed]htt­p://issu­u.com/kjarn­inn/docs/2014_07_10/18[/em­bed]

Þetta er örstutt brot úr umfjöllun Kjarn­ans um breyt­ing­arnar á neyt­enda­mark­aði vegna frí­versl­unar við Kína. Lestu hana í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None