Kjarasamningsviðræður í hnút - horft til læknasamningsins

14317521740_8e6842474c_k-2.jpg
Auglýsing

Him­inn og haf ber á milli aðila vinnu­mark­að­ar­ins, það er for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og Sam­taka atvinnu­lífs­ins, fyrir kom­andi kjara­samn­ings­við­ræður en 45 kjara­samn­ingar laun­þega renna út um næstu mán­að­ar­mót. Eins og greint hefur verið frá í fréttum Kjarn­ans und­an­farnar vik­ur, er mein­ing­ar­munur þeirra sem aðild eiga að samn­inga­við­ræð­un­um, til þess hve mikið er hægt að hækka laun, eins og svart og hvítt. Samn­ingar virð­ast víðs­fjarri.

Verka­lýðs­hreyf­ingin telur svig­rúm vera fyrir 20 til 30 pró­sent hækkun launa, og þar einkum hjá þeim sem lægstu launin hafa, á meðan Sam­tök atvinnu­lífs­ins (SA) horfa til þess að hámarks­launa­hækk­un, að með­al­tali, sé um 3,5 pró­sent. Hag­kerfið ráði ekki við meiri hækkun en það, segja sam­tök­in, og umfram hækk­anir geti runnið beint út í verð­lag og brennt upp kaup­mátt allra. Hafa sam­tökin unnið sjálf­stæðar úttektir og grein­ingar á stöð­unni, meðal ann­ars sviðs­mynda­grein­ingar, þar sem rök eru færð fyrir því að lítið meira svig­rúm en 3,5 pró­sent hækkun launa sé til hækk­un­ar.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, er einn þeirra sem áherslu hefur lagt á að lægstu laun verði lækkuð myndarlega í komandi kjarasamningum. Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, er einn þeirra sem áherslu hefur lagt á að lægstu laun verði lækkuð mynd­ar­lega í kom­andi kjara­samn­ing­um.

Auglýsing

Hjá Starfs­greina­sam­band­inu (SGS), sem fer með samn­ings­um­boð sextán aðilda­fé­laga og ríf­lega tólf þús­und félags­manna, horfir þetta þver­öf­ugt við. Í kröfu­gerð sam­bands­ins kemur fram að lægstu laun skuli hækkuð í 300 þús­und á þremur árum, en þau eru 214 þús­und nú. Þá þurfi enn fremur að ná fram veru­legum launa­hækk­unum hjá fólki í gjald­eyr­is­skap­andi grein­um. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, hefur mikil sam­staða náðst meðal allra aðild­ar­fé­laga, um að knýja fram tug­pró­senta launa­hækkun lægstu launa.

Verka­lýðs­hreyf­ingin horfir meðal ann­ars til samn­ings íslenska rík­is­ins við lækna, en launa þeirra voru hækkuð með samn­ingi við ríkið í jan­úar um rúm­lega tutt­ugu pró­sent. Það sama má segja um Félag íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, en þar á bæ eru uppi kröfur um svip­að­ar­ hækk­anir og læknar fengu í sínum samn­ingi, eða 20 til 25 pró­sent. Ólafur G. Skúla­son, for­maður Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, segir að stétt hjúkr­un­ar­fræð­inga verði að fá „leið­rétt­ingu“ á launum sínum til jafns við aðrar háskóla­mennt­aðar stéttir hjá hinu opin­bera, og þá sé samn­ing­ur­inn við lækna einnig eðli­legt við­mið í við­ræðum við hjúkr­un­ar­fræð­inga.

Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, segir ekki vera svigrúm til meiri launahækkana en hagkerfið ráði við, sem sé í kringum 3,5 prósent hækkun. Annars geri verðbólgudraugurinn vart við sig og éti upp kaupmátt allra. Þor­steinn Víglunds­son, fram­kvæmda­stjóri SA, segir ekki vera svig­rúm til meiri launa­hækk­ana en hag­kerfið ráði við, sem sé í kringum 3,5 pró­sent hækk­un. Ann­ars geri verð­bólgu­draug­ur­inn vart við sig og éti upp kaup­mátt allra.

Nú þegar hefur verið horft til þess að rík­is­sátta­semj­ari komi að málum og aðstoði við að leysa úr ágrein­ingi og ná fram samn­ingi, en samn­inga­nefnd SGS veitti samn­inga­ráði SGS umboð til þess að vísa deil­unni við SA til rík­is­sátta­semja 29. jan­úar síð­ast­lið­inn. Fátt bendir til ann­ars en að víð­tækt sam­ráð stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins, í anda Þjóð­ar­sátt­ar­samn­ing­ana svoköll­uðu árið 1990, muni þurfa til þess að leysa úr þeirri stöðu sem upp er kom­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnMagnús Halldórsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None