Lögreglustjórinn í veikri stöðu eftir úrskurð Persónuverndar

sbg.jpg
Auglýsing

Sig­ríður Björk Guð­jóns­dótt­ir, þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, braut lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga með því að skrá ekki í mála­skrá emb­ætt­is­ins þegar hún sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra, grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos við upp­haf leka­máls­ins svo­kall­aða. Þetta kemur fram í úrskurði Per­sónu­verndar sem Kjarn­inn birti fyrstur fjöl­miðla á föstu­dag­inn.

Þar að auki hafði Sig­ríður Björk, sem er lög­fræði­mennt­uð, ekki heim­ild til að senda grein­ar­gerð­ina en henni bar, sem ábyrgð­ar­að­ili á vinnslu per­sónu­upp­lýs­ing­anna, að kanna á hvaða laga­grund­velli beiðni Gísla Freys um grein­ar­gerð­ina var sett fram. Þá er sömu­leiðis látið að því liggja í úrskurði Per­sónu­verndar að Sig­ríður Björk hafi brotið gegn lög­reglu­lögum þar sem kveðið er á um þagn­ar­skyldu lög­reglu, svo við­kvæmar hafi per­sónu­upp­lýs­ing­arnar um Tony Omos ver­ið.

Mat lög­regl­unnar að heim­ild var til staðar



Í yfir­lýs­ingu kveðst Sig­ríður Björk hafa sent Gísla Frey grein­ar­gerð­ina í góðri trú. Per­sónu­vernd fellst ekki á það í úrskurð­inum og ítrekar að lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum hafi átt að vita bet­ur. Þá segir í yfir­lýs­ingu Sig­ríðar Bjark­ar: „Það var mat lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum að laga­leg heim­ild væri til staðar fyrir miðlun skýrslu­drag­anna.“

Kjarn­inn sendi Sig­ríði Björk svohljóð­andi fyr­ir­spurn í ljósi þess­arar full­yrð­ing­ar: „Hvernig fór umrætt mat fram? Í ljósi mats­ins, af hverju var þá miðlun upp­lýs­ing­anna ekki skráð í mála­skrá lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum? Eru til ein­hver gögn því til stað­fest­ingar að umrætt mat hafi farið fram?“ ­Sig­ríður Björk hefur ekki svarað fyr­ir­spurn Kjarn­ans, sem send var henni í gær.

Auglýsing

Kjarn­inn sendi sömu­leiðis Ólafi Helga Kjart­ans­syni, lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, sam­bæri­lega fyr­ir­spurn. Þar seg­ir: „Eru til ein­hverjar upp­lýs­ingar hjá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum varð­andi umrætt mat? Hafið þið ein­hverjar skýr­ingar af hverju miðlun skýrslu­drag­anna var ekki skráð í mála­skrá lög­reglu­emb­ætt­is­ins í kjöl­far mats­ins? Hvernig fer slíkt mat fram?“

Ólafur Helgi sendi Kjarn­anum svohljóð­andi svar í kjöl­far­ið: „Allar upp­lýs­ingar sem Lög­reglan á Suð­ur­nesjum bjó yfir varð­andi umspurt mál voru sendar Per­sónu­vernd í sam­ræmi við ósk þar að lút­and­i. ­Per­sónu­vernd hafði aðgang að upp­lýs­ingum varð­andi málið við upp­kvaðn­ingu úrskurð­ar­ins. ­Mál­inu er lokið af hálfu Per­sónu­verndar og er vísað (til) úrskurð­ar­ins varð­andi efn­is­at­riði varð­andi þau gögn sem fyrir lágu í mál­in­u.“

Reyndi að víkja sér undan ábyrgð



Þá segir í yfir­lýs­ingu Sig­ríðar Bjarkar í kjöl­far úrskurðar Per­sónu­vernd­ar: „Per­sónu­vernd segir í úrskurði sínum „að mót­taka aðstoð­ar­manns­ins á skýrslu­drög­unum frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum hafi talist liður í starf­semi ráðu­neyt­is­ins og það því ábyrgð­ar­að­ili að þeirri vinnslu sem í mót­töku drag­anna fól­st“. Það var því ráðu­neyt­is­ins að tryggja að rétt yrði farið með skjal­ið.“ 

Erfitt er að túlka úrskurð Per­sónu­verndar á þann veg að hægt sé að fría lög­regl­una á Suð­ur­nesjum af þeirri ábyrgð að sann­reyna hvort heim­ild hafi verið til staðar fyrir miðlun per­sónu­upp­lýs­inga til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þó ráðu­neytið hafi borið ábyrgð á að skrá­setja mót­töku gagn­anna. Sem ekki var gert, og Per­sónu­vernd gerir athuga­semd við í úrskurði sín­um.

Stórum spurn­ingum enn ósvarað



Tveimur stærstu spurn­ing­unum er lúta að meintri aðild Sig­ríðar Bjarkar að leka­mál­inu er auð­vitað enn ósvar­að: a) byggði minn­is­blaðið sem sent var fjöl­miðlum og mark­að­i ­upp­haf leka­máls­ins á upp­lýs­ingum frá henni og b) af hverju upp­lýsti Sig­ríður Björk aldrei rann­sak­endur leka­máls­ins um sam­skipti sín við Gísla Frey?

Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra virð­ist að minnsta kost­i kæra sig koll­ótta um svarið við síð­ar­nefndu spurn­ing­unni, miðað við svör hennar við spurn­ingum frétta­manna á mánu­dag­inn og skýr­ingar Sig­ríðar Bjarkar á því af hverju hún hélt sam­skiptum hennar og Gísla Freys leyndum fyrir lög­reglu­mönn­um, sem hún stýrir sjálf í dag, hafa verið heldur ófull­nægj­andi. Þá virð­ist inn­an­rík­is­ráð­herra hafa samúð á skýr­ingum lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu að hann hafi hrein­lega ekki vitað bet­ur.

Þá hefur enn ekki verið úti­lokað með óyggj­andi hætti að upp­lýs­ing­arnar sem finna mátti í minn­is­blað­inu sem Gísli Freyr lak til fjöl­miðla og hlaut skil­orðs­bund­inn dóm fyr­ir, hafi komið frá Sig­ríði Björk. Þá vakti athygli að hún kaus að nota annan síma á heim­ili sínu en sinn eigin þegar hún hringdi í Gísla Frey, um morg­un­inn þeg­ar ­fyrstu frétt­irnar um leka­málið birt­ust í fjöl­miðl­um.

Hefnd Hönnu Birnu?



Frá því að Sig­ríður Björk var skipuð lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins án aug­lýs­ing­ar, eftir að Stefán Eiríks­son vék úr emb­ætt­inu í kjöl­far rann­sóknar leka­máls­ins, hefur hún tekið til handa við að breyta yfir­stjórn lög­regl­unn­ar. Sam­kvæmt heim­ilda­mönnum Kjarn­ans eru trakt­er­ingar Sig­ríðar Bjarkar í takt við ummæli ­sem Hanna Birna Krist­jáns­dóttir fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra við­hafði við Stefán Eiríks­son á meðan rann­sókn leka­máls­ins stóð, um að hreinsað yrði til hjá lög­regl­unni.

Eins og Stundin bent­i á í lok febr­úar hafa tveir helstu sam­starfs­menn Stef­áns verið settir til hliðar eftir að Sig­ríður Björk tók til starfa. Jón H. B. Snorra­son, sak­sókn­ari, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri og fyrr­ver­andi stað­geng­ill Stef­áns hefur verið fluttur úr aðal­stöðvum lög­regl­unnar við Hverf­is­götu og yfir á Rauð­ar­ár­stíg, og þá var Hörður Jóhann­es­son aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri fluttur yfir til emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra í tíma­bundin verk­efni. Á sama tíma var Alda Hrönn Jóhanns­ddótt­ir, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum, skip­aður aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í fjar­veru Harð­ar.

Lög­reglu­menn sem Kjarn­inn hefur talað við hafa áhyggjur af því hvaða áhrif úrskurður Per­sónu­verndar hefur á trú­verð­ug­leika emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hvaða skila­boð það sendi út á við að lög­reglu­stjóri sem braut lög og kann ekki að fara með per­sónu­upp­lýs­ingar sitji sem fast­ast. Þá segja þeir ákvörðun Sig­ríðar Bjarkar um að halda sam­skiptum sínum og Gísla Freys við upp­haf leka­máls­ins, leyndum fyrir und­ir­mönnum sínum hjá lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, hafa hleypt illu blóði í marga lag­anna verði hjá emb­ætt­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÆgir Þór Eysteinsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar
None