Stjórnarflokkarnir hafa tapað yfir fjórðungi fylgis síns og mælast langt frá meirihluta

Tvær kannanir sem birtar voru í lok árs sýna að Samfylkingin og Píratar hafa bætt við sig 14 til 16 prósentustigum af fylgi það sem af er kjörtímabili. Sjálfstæðisflokkur, Vinstri græn og Framsókn hafa á sama tíma tapað 13,6 til 14,3 prósentustigum.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur setið að völdum síðan seint á árinu 2017.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur setið að völdum síðan seint á árinu 2017.
Auglýsing

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast með 40 til 40,7 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi í tveimur könn­unum sem birtar voru í lok árs, ann­ars vegar frá Mask­ínu og hins vegar frá Pró­sent. Í kosn­ing­unum sem fram fóru haustið 2021 fengu Sjálf­stæð­is­flokk­ur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn sam­tals 54,3 pró­sent fylgi og hafa því tapað rúmum fjórð­ungi þess á þeim 14 mán­uðum sem liðnir eru af kjör­tíma­bil­in­u. 

Sam­kvæmt könnun Mask­ínu tapa allir stjórn­ar­flokk­arnir fylgi og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem alla jafna mælist stærsti flokkur lands­ins, missir þá stöðu yfir til Sam­fylk­ing­ar­innar þótt mun­ur­inn sé sára­lít­ill og vel innan skekkju­marka. Fylgis­tap stjórn­ar­flokk­anna þriggja er á bil­inu 4,4 til 5,1 pró­sentu­stig, minnst hjá Sjálf­stæð­is­flokki en mest hjá Fram­sókn. Hlut­falls­lega tapa Vinstri græn þó mestu fylgi, en 38 pró­sent þess hefur snúið sér annað á kjör­tíma­bil­in­u. 

Í könnun Pró­sents er staðan aðeins önn­ur. Nið­ur­staða hennar er að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapar litlu – rúmu pró­sentu­stigi frá síð­ustu kosn­ingum – en Vinstri græn tæp­lega helm­ingi síns fylgis og Fram­sókn tæp­lega 40 pró­sent. Flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra yrði næst minnsti flokk­ur­inn sem næði inn á þing, ef nið­ur­staða síð­ustu könn­unar Pró­sents kæmi upp úr kjör­köss­unum næst þegar kosið verð­ur. 

Auglýsing
Báðar kann­an­irnar sýna að rík­is­stjórnin myndi að öllum lík­indum kol­falla ef kosið yrði í dag. Sam­kvæmt Mask­ínu fengi hún 25 þing­menn en Pró­sent gefur henni tveimur fleiri, þar sem hún sýnir sjö flokka örugga inni á þingi með jöfn­un­ar­þing­menn en Mask­ína sýnir níu. Ef fjöldi atkvæða fellur niður dauður ýkir það þing­manna­fjölda þeirra sem ná þing­mönnum inn á Alþing­i. 

Sam­fylk­ingin tvö­fald­ast á rúmu ári

Þorri þess fylgis sem rjátl­ast hefur af stjórn­ar­flokk­unum hefur lent hjá tveimur stjórn­ar­and­stöðu­flokk­um, Sam­fylk­ingu og Píröt­u­m. 

Sam­fylk­ingin bætir við sig fylgi milli mán­aða sam­kvæmt báðum könn­unum og mælist með 20,1 til 20,5 pró­sent fylgi. Það er rúm­lega tvö­falt meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í fyrra­haust, þegar 9,9 pró­sent lands­manna kusu flokk­inn. Í könnun Mask­ínu gerð­ist það einnig að Sam­fylk­ingin mæld­ist 0,1 pró­sentu­stigi stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Mikil fylg­is­aukn­ing flokks­ins er til­komin í kjöl­far þess að Kristrún Frosta­dóttir var kjör­inn for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í haust. Sam­hliða for­manns­kjör­inu hefur Kristrún boðað nýjar áherslur hjá flokkn­um. Hægt er að lesa um þær í við­tali Kjarn­ans við hana hér.

Píratar mæl­ast líka með umtals­vert meira fylgi en þeir fengu í síð­ustu kosn­ing­um, eða 12,5 til 14,3 pró­sent í stað þeirra 8,6 pró­senta sem kom upp úr kjör­köss­unum 25. sept­em­ber 2021. Fylg­is­aukn­ingin er 3,9 til 5,7 pró­sent.

Sam­an­lagt hefur fylgi Sam­fylk­ingar og Pírata auk­ist um 14,1 pró­sent sam­kvæmt Mask­ínu og um 16,3 pró­sent sam­kvæmt Pró­sent. Í síð­ar­nefndu könn­un­inni er það ekki fjarri sam­eig­in­legu fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja. Sam­fylk­ingin og Píratar mæl­ast þar með 34,8 pró­sent fylgi en stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast með 40,3 pró­sent. 

Auglýsing
Ef Við­reisn, sem hefur dalað í fylgi frá síð­ustu kosn­ingum sam­kvæmt báðum könn­un­um, yrði bætt við eru þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ar, hin svo­kall­aða frjáls­lynda miðja, með meira fylgi en rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir sam­kvæmt könnun Pró­sents. 

Mis­vísandi mæl­ingar

Flokkur fólks­ins fær mjög mis­vísandi nið­ur­stöðu út úr könn­unum tveimur Í könnun Pró­sents er fylgi flokks­ins rétt við tíu pró­sent, og meira en í síð­ustu kosn­ing­um, en í könnun Mask­ínu er það sjö pró­sent, og tölu­vert undir því sem flokkur Ingu Sæland fékk þá. 

Sömu sögu er að segja af Mið­flokkn­um, sem rétt skreið inn á þing i kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021 með 5,4 pró­sent atkvæða. Hjá Pró­sent mælist hann með 4,5 pró­sent fylgi, sem allar líkur eru á að dugi ekki til að ná inn manni, en hjá Mask­ínu mælist fylgið 6,7 pró­sent og á upp­leið.

Svipað er uppi á ten­ingnum hjá Sós­í­alista­flokkn­um, sem fékk 4,1 pró­sent í síð­ustu kosn­ing­um. Pró­sent mælir flokk­inn á svip­uðum stað og þá en Mask­ína segir 6,1 pró­sent svar­enda styðja Sós­í­alista­flokk­inn, sem myndi skila honum nokkuð örugg­lega inn á þing. 

Könnun Mask­ínu var lögð fyrir dag­ana 16. til 28. des­em­ber og 1.703 svar­endur tóku afstöðu. Könnun Pró­sents var fram­kvæmd 22. til 30. des­em­ber, var net­könnun með fjögur þús­und manna úrtak og 49,6 pró­sent svar­hlut­falli.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar