Stærstu lífeyrissjóðir landsins hafa bætt vel við sig beinum hlutum í útgerðarfélögunum tveimur sem skráð eru á Aðalmarkaði í síðustu tvo mánuði.
Mest hefur Gildi lífeyrissjóður, þriðji stærsti sjóður landsins, keypt eða samtals fyrir um 2,1 milljarð króna í Síldarvinnslunni. Hann er nú orðinn þriðji stærsti hluthafi félagsins á eftir Samherja og Kjálkanesi, eftir að hafa tekið fram úr Samvinnufélagi útgerðarmanna á Neskaupsstað í septembermánuði.
Tveir stærstu sjóðir landsins, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóður verzlunarmanna, hafa bætt vel við sig í hinum skráða útgerðarrisanum, Brimi, og eru annar og þriðji stærsti eigandi hans með samtals 29,2 prósent eignarhlut.
Tveir stærstu stjóðirnir stórir í Brimi
LSR, bæði A- og B-deild, keyptu bréf í Brimi fyrir um 290 milljónir króna í ágúst og fyrir 167 milljónir króna í september. Þessi stærsti lífeyrissjóður landsins á nú samtals 18,4 prósent hlut í félaginu.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna keypti fyrir rúmlega 48 milljónir króna í Brimi í ágúst en fyrir tæplega 376 milljónir króna í september. Hann á nú 10,8 prósent hlut í Brimi.
Auk þessara tveggja stóru sjóða á Birta lífeyrissjóður 2,8 prósent hlut í Brimi og tveir aðrir lífeyrissjóðir, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda sem á 1,6 prósent og Almenni lífeyrissjóðurinn sem á 0,7 prósent, eru á meðal 20 stærstu hluthafa Brim. Samanlagt eiga lífeyrissjóðir landsins því nú að minnsta kosti 34,3 prósent hlut í Brimi, en einungis er birtur listi yfir þá 20 hluthafa sem eiga mest í skráðu félagi hverju sinni. Í tilfelli Brims eiga 20 stærstu 91,9 prósent alls hlutafjár.
Auk þess eiga félögin KG Fiskverkun og Stekkjasalir, í eigu Hjálmars Kristjánssonar bróður Guðmundar og sona hans, 5,9 prósent hlut í Brimi og félagið á 1,6 prósent hlut í sjálfu sér. Bræðurnir halda því á 49,9 prósent hlut í útgerðarrisanum og geta saman myndað meirihluta í honum ef atkvæðavægi eigin hlutar Brims er dregið frá.
Brim hagnaðist um 6,9 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Hagnaður félagsins var 113 prósent meiri en á sama tímabili í fyrra þegar hann er reiknaður í evrum, uppgjörsmynt Brims.
Tekjur Brims á fyrri helmingi ársins 2021 voru 34,3 milljarðar króna og eigið fé félagsins 58,6 milljarðar króna í lok júní síðastliðins. Eiginfjárhlutfallið var 50,4 prósent um mitt þetta ár. Tekjur Brims á fyrri helmingi ársins 2021 voru 34,3 milljarðar króna og eigið fé félagsins 58,6 milljarðar króna í lok júní síðastliðins. Eiginfjárhlutfallið var 50,4 prósent um mitt þetta ár.
Hlutabréfaverð í Brimi hefur lækkað um 15 prósent síðastliðinn mánuð. Markaðsvirði félagsins nú er um 157 milljarðar króna, sem er 26 milljörðum krónum minna en það var fyrir rúmum mánuði síðan. Það er þó enn rúmlega 80 milljörðum krónum meira en það var seint í september 2021.
Gildi orðinn þriðji stærsti eigandi Síldarvinnslunnar
Lífeyrissjóðirnir hafa líka verið að byggja upp stærri stöður í Síldarvinnslunni, en hún var skráð á markað í fyrra. Í ágústmánuði keypti Gildi lífeyrissjóður hlutabréf í útgerðarfélaginu fyrir tæplega 1,3 milljarða króna og í síðasta mánuði bætti sjóðurinn við bréfum fyrir 788 milljónir króna. Hann á nú 11,2 prósent hlut í Síldarvinnslunni. Lífeyrissjóður verzlunarmanna bætti sömuleiðis við sig í síðasta mánuði og keypti hluti fyrir alls 162 milljónir króna.
Alls eiga þeir lífeyrissjóðir sem eru á meðal 20 stærstu eigenda Síldarvinnslunnar nú beint 21,5 prósent hlut í Síldavinnslunni. Í byrjun ágúst áttu slíkir 19,8 prósent hlut og hafa því bætt við sig 1,7 prósentustigum á tveimur mánuðum. Auk ofangreindra eru Stapi, Festa, Almenni lífeyrissjóðurinn, Brú og lífeyrissjóður Vestmannaeyja eru einnig á meðal stærstu hluthafa.
Auk þess eiga lífeyrissjóðir óbeina hluti í gegnum sjóðstýringafyrirtæki sem keypt hafa hluti í útgerðarrisunum tveimur.
Stærstu eigendur Síldarvinnslunnar eru Samherji (32,6 prósent) og félagið Kjálkanes 17,4 prósent), sem er í eigu sömu einstaklinga og eiga útgerðina Gjögur frá Grenivík. Þar er meðal annars um að ræða Björgólf Jóhannsson, sem var um tíma annar forstjóri Samherja, og fólks sem tengist honum fjölskylduböndum, meðal annars systkini hans. Þá á Kaldbakur, félag í eigu Samherja, 15 prósent hlut í öðru félagi, Eignarhaldsfélaginu Snæfugli, sem á 3,8 prósent hlut í Síldarvinnslunni. Á meðal annarra hluthafa í Snæfugli er Björgólfur. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er stjórnarformaður Síldarvinnslunnar.
Þá á félagið Hraunlón, í eigu Gunnþórs Ingvasonar, Axels Ísakssonar og Jóns Más Jónssonar, sem allir eiga sæti í framkvæmdastjórn Síldarvinnslunnar, um eitt prósent hlut.
Samkeppniseftirlitið telur vísbendingar um að þessir aðilar, Síldarvinnslan, Samherji og Gjögur, eigi mögulega að teljast tengdir í skilningi laga. Þetta kom fram í ákvörðun sem eftirlitið birti í byrjun árs 2021. Þeir héldu samtals á 22,14 prósent af öllum úthlutuðum kvóta í nóvember í fyrra.
Samanlagður eignarhlutur þessara aðila, sem Samkeppniseftirlitið telur vísbendingar um að séu tengdir, er því 54,8 prósent. Eftirlitinu var nýverið falið að kortleggja stjórnunar- og eignatengsl í sjávarútvegi.
Síldarvinnslan birti uppgjör sitt fyrir fyrri hluta ársins 2022 í ágústmánuði. Þar kom fram að hagnaður félagsins hafi verið 6,5 milljarðar króna á fyrstu sex mánuðum ársins, ef miðað er við gengi Bandaríkjadals í dag, en útgerðin gerir upp í þeim gjaldmiðli.
Eigið fé Síldarvinnslunnar var 61,7 milljarðar króna um mitt þetta ár. Verðmætasta bókfærðu eignir félagsins eru aflaheimildir sem eru sagðar 37,7 milljarða króna virði.
Hlutabréfaverð í Síldarvinnslunni lækkaði um 7,3 prósent síðastliðinn mánuð. Frá því seint í september og þangað til snemma í síðasta mánuði hækkaði það hins vegar um rúmlega 85 milljarða króna, eða um 95 milljarða króna. Markaðsvirði félagsins í dag er 195 milljarðar króna, sem er 16 milljörðum króna lægra en fyrir mánuði síðan.