Stórir lífeyrissjóðir keypt fyrir milljarða í skráðum útgerðum á tveimur mánuðum

Lífeyrissjóðir eru hægt og rólega að styrkja stöður sínar í eigendahópi þeirra tveggja útgerðarfélaga sem skráð eru á markað. Gildi hefur keypt hluti í Síldarvinnslunni fyrir yfir tvo milljarða á tveimur mánuðum.

Sú mikla hækkun sem varð á bréfum í Síldarvinnslunni og Brimi í september í fyrra má rekja til stóraukins loðnukvóta. Fyrirséð er að sá kvóti mun dragast umtalsvert saman í ár, miðað við fyrirliggjandi veiðiráðgjöf.
Sú mikla hækkun sem varð á bréfum í Síldarvinnslunni og Brimi í september í fyrra má rekja til stóraukins loðnukvóta. Fyrirséð er að sá kvóti mun dragast umtalsvert saman í ár, miðað við fyrirliggjandi veiðiráðgjöf.
Auglýsing

Stærstu líf­eyr­is­­sjóðir lands­ins hafa bætt vel við sig beinum hlutum í útgerð­­ar­­fé­lög­unum tveimur sem skráð eru á Aðal­­­mark­aði í síð­­­ustu tvo mán­uð­i. 

Mest hefur Gildi líf­eyr­is­sjóð­ur, þriðji stærsti sjóður lands­ins, keypt eða sam­tals fyrir um 2,1 millj­arð króna í Síld­ar­vinnsl­unni. Hann er nú orð­inn þriðji stærsti hlut­hafi félags­ins á eftir Sam­herja og Kjálka­nesi, eftir að hafa tekið fram úr Sam­vinnu­fé­lagi útgerð­ar­manna á Nes­kaups­stað í sept­em­ber­mán­uð­i. 

Tveir stærstu sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­­sjóður starfs­­manna rík­­is­ins (LSR) og Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna, hafa bætt vel við sig í hinum skráða útgerð­ar­ris­an­um, Brimi, og eru annar og þriðji stærsti eig­andi hans með sam­tals 29,2 pró­sent eign­ar­hlut.

Tveir stærstu stjóð­irnir stórir í Brimi

LSR, bæði A- og B-deild, keyptu bréf í Brimi fyrir um 290 millj­­ónir króna í ágúst og fyrir 167 millj­ónir króna í sept­em­ber. Þessi stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins á nú sam­tals 18,4 pró­­sent hlut í félag­in­u. 

Líf­eyr­is­­sjóður verzl­un­ar­manna keypti fyrir rúm­­lega 48 millj­­ónir króna í Brimi í ágúst en fyrir tæp­lega 376 millj­ónir króna í sept­em­ber. Hann á nú 10,8 pró­sent hlut í Brim­i. 

Auk þess­ara tveggja stóru sjóða á Birta líf­eyr­is­sjóður 2,8 pró­sent hlut í Brimi og tveir aðrir líf­eyr­is­sjóð­ir, Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda sem á 1,6 pró­sent og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn sem á 0,7 pró­sent, eru á meðal 20 stærstu hlut­hafa Brim. Sam­an­lagt eiga líf­eyr­is­­sjóðir lands­ins því nú að minnsta kosti 34,3 pró­­sent hlut í Brim­­i, en ein­ungis er birtur listi yfir þá 20 hlut­hafa sem eiga mest í skráðu félagi hverju sinni. Í til­felli Brims eiga 20 stærstu 91,9 pró­sent alls hluta­fjár. 

Auglýsing
Langstærsti eig­andi þess félags er þó enn Útgerð­­­­­­­­ar­­­­­­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­­­­­­­­­­­ur, sem á 43,97 pró­­­­­­­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­­­­­­­ur­­­­­­­­fé­lag sitt RE-13 ehf. Það félag er að upp­­­­i­­­­­­stöðu í eigu Guð­­­­­mundar Krist­jáns­­­­­son­­­­­ar.

Auk þess eiga félögin KG Fisk­verkun og Stekkja­sal­ir, í eigu Hjálm­­­ars Krist­jáns­­­sonar bróður Guð­­­mundar og sona hans, 5,9 pró­­­sent hlut í Brimi og félagið á 1,6 pró­­­sent hlut í sjálfu sér. Bræð­­­urnir halda því á 49,9 pró­­­sent hlut í útgerð­­­ar­ris­­­anum og geta saman myndað meiri­hluta í honum ef atkvæða­vægi eigin hlutar Brims er dregið frá. 

Guðmundur Kristjánsson kynnir uppgjör Brim fyrir fyrri hluta ársins 2022. Mynd: Brim/Skjáskot

Brim hagn­að­ist um 6,9 millj­­­arða króna á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Hagn­aður félags­­­ins var 113 pró­­­sent meiri en á sama tíma­bili í fyrra þegar hann er reikn­aður í evr­­­um, upp­­­­­gjör­s­­­mynt Brim­­­s. 

Tekjur Brims á fyrri helm­ingi árs­ins 2021 voru 34,3 millj­­­arðar króna og eigið fé félags­­­ins 58,6 millj­­­arðar króna í lok júní síð­­­ast­lið­ins. Eig­in­fjár­­­hlut­­­fallið var 50,4 pró­­­sent um mitt þetta ár. Tekjur Brims á fyrri helm­ingi árs­ins 2021 voru 34,3 millj­­­arðar króna og eigið fé félags­­­ins 58,6 millj­­­arðar króna í lok júní síð­­­ast­lið­ins. Eig­in­fjár­­­hlut­­­fallið var 50,4 pró­­­sent um mitt þetta ár.

Hluta­bréfa­verð í Brimi hefur lækkað um 15 pró­sent síð­ast­lið­inn mán­uð. Mark­aðsvirði félags­­ins nú er um 157 millj­arðar króna, sem er 26 millj­örðum krónum minna en það var fyrir rúmum mán­uði síð­an. Það er þó enn rúm­lega 80 millj­örðum krónum meira en það var seint í sept­em­ber 2021. 

Gildi orð­inn þriðji stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar

Líf­eyr­is­­sjóð­irnir hafa líka verið að byggja upp stærri stöður í Síld­­ar­vinnsl­unni, en hún var skráð á markað í fyrra. Í ágúst­mán­uði keypti Gildi líf­eyr­is­­sjóður hluta­bréf í útgerð­­ar­­fé­lag­inu fyrir tæp­­lega 1,3 millj­­arða króna og í síð­asta mán­uði bætti sjóð­ur­inn við bréfum fyrir 788 millj­ónir króna. Hann á nú 11,2 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. Líf­eyr­is­­sjóður verzl­un­ar­manna bætti sömu­leiðis við sig í síð­asta mán­uði og keypti hluti fyrir alls 162 millj­ónir króna. 

Auglýsing
Þessi kaup koma til við­bótar því að líf­eyr­is­sjóður banka­­manna keypti hluti fyrir 575 millj­­ónir króna í ágúst­mán­uð­in, og á nú 0,3 pró­­sent, og líf­eyr­is­­sjóður starfs­­manna Reykja­vík­­­ur­­borgar keypti 0,2 pró­­sent hlut þá fyrir rúm­­lega hálfan millj­­arð króna. 

Alls eiga þeir líf­eyr­is­­sjóðir sem eru á meðal 20 stærstu eig­enda Síld­­ar­vinnsl­unnar nú beint 21,5 pró­sent hlut í Sílda­vinnsl­unni. Í byrjun ágúst áttu slíkir 19,8 pró­sent hlut og hafa því bætt við sig 1,7 pró­sentu­stigum á tveimur mán­uð­um. Auk ofan­greindra eru Stapi, Festa, Almenni líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn, Brú og líf­eyr­is­­sjóður Vest­­manna­eyja eru einnig á meðal stærstu hlut­hafa. 

Auk þess eiga líf­eyr­is­­sjóðir óbeina hluti í gegnum sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tæki sem keypt hafa hluti í útgerð­­ar­ris­unum tveim­­ur.

Stærstu eig­endur Síld­­­­­­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji (32,6 pró­­sent) og félagið Kjálka­­­­­­­nes 17,4 pró­­sent), sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­­­­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­­­­­son, sem var um tíma annar for­­­­­­­stjóri Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­­­­­skyld­u­­­­­­bönd­um, meðal ann­­­­­ars syst­k­ini hans. Þá á Kald­bak­­­­­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­­­­­ar­halds­­­­­­­­­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á 3,8 pró­­sent hlut í Síld­­­­­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­­­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­­­­­ur. Þor­­steinn Már Bald­vins­­son, for­­stjóri Sam­herja, er stjórn­­­ar­­for­­maður Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar. 

Gunnþór Ingvason er forstjóri Síldarvinnslunnar. Mynd: Síldarvinnslan/Skjáskot

Þá á félagið Hraun­lón, í eigu Gunn­þórs Ingva­­son­­ar, Axels Ísaks­­sonar og Jóns Más Jóns­­son­­ar, sem allir eiga sæti í fram­­kvæmda­­stjórn Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar, um eitt pró­­sent hlut. 

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur vís­bend­ingar um að þessir aðil­­­­ar, Síld­­­­­­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­­­­­­ur, eigi mög­u­­­­lega að telj­­­­ast tengdir í skiln­ingi laga. Þetta kom fram í ákvörðun sem eft­ir­litið birti í byrjun árs 2021. Þeir héldu sam­tals á 22,14 pró­­­­­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta í nóv­­­­­em­ber í fyrra. 

Sam­an­lagður eign­­ar­hlutur þess­­ara aðila, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur vís­bend­ingar um að séu tengd­ir, er því 54,8 pró­­sent. Eft­ir­lit­inu var nýverið falið að kort­leggja stjórn­un­ar- og eigna­tengsl í sjáv­ar­út­vegi.

Síld­­­ar­vinnslan birti upp­­­­­gjör sitt fyrir fyrri hluta árs­ins 2022 í ágúst­mán­uði. Þar kom fram að hagn­aður félags­­­ins hafi verið 6,5 millj­­­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, ef miðað er við gengi Banda­­­ríkja­dals í dag, en útgerðin gerir upp í þeim gjald­miðli. 

Eigið fé Síld­­­ar­vinnsl­unnar var 61,7 millj­­­arðar króna um mitt þetta ár. Verð­­­mætasta bók­­­færðu eignir félags­­­ins eru afla­heim­ildir sem eru sagðar 37,7 millj­­­arða króna virð­i. 

Hluta­bréfa­verð í Síld­ar­vinnsl­unni lækk­aði um 7,3 pró­sent síð­ast­lið­inn mán­uð. Frá því seint í sept­em­ber og þangað til snemma í síð­asta mán­uði hækk­aði það hins vegar um rúm­lega 85 millj­arða króna, eða um 95 millj­arða króna. Mark­aðsvirði félags­ins í dag er 195 millj­arðar króna, sem er 16 millj­örðum króna lægra en fyrir mán­uði síð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira eftir höfundinnÞórður Snær Júlíusson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar