Viðbúið að 523 flugvélar sjáist aldrei aftur

Hundruð flugvéla í eigu erlendra flugleigufélaga eru staddar í Rússlandi og er talið að þær verði aldrei endurheimtar. Um er að ræða fjárhagslegt tap upp á um 12 milljarða Bandaríkjadala.

Aeroflot hefur 89 flugvélar til leigu frá erlendum flugleigufélögum.
Aeroflot hefur 89 flugvélar til leigu frá erlendum flugleigufélögum.
Auglýsing

Nú þegar fjöld­inn allur af vest­rænum fyr­ir­tækjum hefur hætt starf­semi í Rúss­landi vegna inn­rásar þess í Úkra­ínu er við­búið að Rússar geri upp­töku á öllum eignum fyr­ir­tækj­anna í Rúss­landi. Aðrir sem eygja síminnk­andi von eftir því að end­ur­heimta eignir sínar frá Rúss­landi eru flugleigu­fé­lög.

Sam­kvæmt við­skipta­bann­inu sem Evr­ópa hefur sett á Rúss­land hafa flugleigu­fé­lög fram til 28. mars til þess að binda enda á öll við­skipti sín í Rúss­landi og koma flug­vélum síðan þaðan burt. Sér­fræð­ingar segja það nán­ast ómögu­legt.

Í síð­ustu viku voru 523 flug­vélar erlendra aðila í útleigu hjá flug­fé­lögum í Rúss­landi, og þar sem búið er að skrúfa fyrir næstum allt alþjóða­flug frá land­inu eru hverf­andi líkur á því að nokkrar þeirra yfir­gefi Rúss­land og að eig­endur þeirra geti þannig leyst þær aftur til sín. Sam­kvæmt umfjöllun New York Times hafa flugleigu­fé­lögin flest þegar sætt sig við að það muni aldrei verða. Um að ræða fjár­hags­legt tap upp á um 12 millj­arða banda­ríkja­dala, eða því sem nemur tæp­lega 1,6 billjónum íslenskra króna.

Auglýsing

Skamm­góður vermir fyrir Rússa

Sér­fræð­ingur í end­ur­heimtu flug­véla fyrir flugleigu­fé­lög segir um að ræða gíf­ur­legt tap og að þegar hafi nokkur stór flugleigu­fé­lög leitað til hans um aðstoð. Þau hafi þó flest sætt sig við að staðan væri afar þröng, og jafn­vel þó það tak­ist að end­ur­heimta ein­hverjar flug­vélar séu þær eig­endum nán­ast einskis virði án ítar­legu við­halds­skýrsl­anna sem fylgja hverri vél fyrir sig, sem yfir­leitt væru geymdar hjá flug­fé­lög­unum sjálf­um.

Ljóst er að um verður að ræða gríð­ar­legt tap fyrir flugleigu­fé­lög, auk þeirra fjölda aðila sem kemur að fjár­mögnun slíkra félaga. En þrátt fyrir að Rúss­land muni græða á því að hafa flug­vél­arnar á sínum verður það ein­ungis til skamms tíma þar sem við­búið er að fljót­lega þurfi vara­hluti til þess að halda vél­unum við, en bæði Air­bus og Boeing hafa hætt öllum við­skiptum við Rúss­land og verða flug­vél­arnar því næst sem ónot­hæfar áður en um of langt líð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent