Niðursoðin fiskilifur á meðal þess helsta sem selt hefur verið til Rússlands frá innrás

Útflutningur frá Íslandi til Rússlands hefur frá innrás ríkisins í Úkraínu einungis verið um 2 prósent af því sem hann var að meðaltali á mánaðargrundvelli í fyrra. Veiðarfæri, fiskilifur og gasolía hefur þó selst til Rússlands.

Sáralítil viðskipti hafa verið með vörur frá Íslandi til Rússlands frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu í lok febrúar.
Sáralítil viðskipti hafa verið með vörur frá Íslandi til Rússlands frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu í lok febrúar.
Auglýsing

Segja má að skrúfast hafi fyrir útflutn­ing á íslenskum varn­ingi til Rúss­lands í kjöl­far inn­rásar rík­is­ins í Úkra­ínu í lok febr­ú­ar­mán­að­ar. Ekki ein ein­asta vara flutt frá Íslandi til Rúss­lands í ágúst­mán­uði, sam­kvæmt tölum frá Hag­stof­unni.

Þetta er umtals­verð breyt­ing. Á síð­asta ári nam verð­mæti íslenskra útflutn­ings­vara til Rúss­lands 389,5 millj­ónum króna að með­al­tali í mán­uði hverj­um, en frá því í mars og fram í ágúst á þessu var útflutn­ings­verð­mætið að með­al­tali ein­ungis 8,4 millj­ónir króna.

Auglýsing

Það jafn­gildir því að verð­mæti mán­að­ar­legs útflutn­ings frá Íslandi til Rúss­lands frá því að Rússar réð­ust inn í Úkra­ínu sé ein­ungis rúm tvö pró­sent af því sem hann var að með­al­tali á síð­asta ári.

Þróun tveggja síð­ustu mán­aða er þó ekki talin þarna með, en nýj­ustu tölur Hag­stof­unnar eru frá því í ágúst.

En hvað er þetta lít­il­ræði, sem íslenskir aðilar hafa verið að flytja út til Rúss­lands þrátt fyrir áhrif inn­rás­ar­innar á við­skipti við ríkið og vöru­flutn­inga? Kjarn­inn tók það helsta sam­an.

Í apr­íl­mán­uði flutti ein­hver íslenskur aðili út 191 kíló af búk­lýsi til Rúss­lands, að and­virði 2,4 millj­óna íslenskra króna. Í mars hafði ein­hver flutt út tæpt tonn af þotu­elds­neyti til Rúss­lands að and­virði 116 þús­und króna.

Auglýsing

Einna stærstu við­skiptin með vörur frá Íslandi áttu sér svo stað í maí, er ein­hver aðili flutti út 15,7 tonn af nið­ur­soð­inni fisklifur fyrir 15,9 millj­ónir króna. Í júní voru svo flutt út 129 tonn af gasol­íum til Rúss­lands, að verð­mæti 23,4 millj­óna króna.

Í júlí var svo tals­vert af veið­ar­færum flutt til Rúss­lands, sam­kvæmt því sem sjá má í útflutn­ings­yf­ir­liti Hag­stof­unn­ar. Flutt voru út fiskinet og fiskineta­slöngur fyrir 4,7 millj­ónir króna, vörur til veið­ar­færa úr járni fyrir 1,5 millj­ónir króna, kaðlar úr pólyetyleni eða pólyprópy­leni fyrir 523 þús­und krón­ur, rúllu­keðjur fyrir 363 þús­und krón­ur, botn­rúllur fyrir 262 þús­und krónur og kast­hjól og reim­hjól fyrir 43 þús­und krón­ur.

Það virð­ist því ekki margt sem enn er flutt til Rúss­lands eftir inn­rás lands­ins í Úkra­ínu og þau við­skipti sem eru enn á milli íslenskra aðila og rúss­neskra eru nær öll á hinn veg­inn, en eins og Kjarn­inn rakti í sam­an­tekt sem birt­ist á dög­unum er ýmiss rúss­neskur fram­leiðslu­varn­ingur enn fluttur til Íslands með svip­uðum hætti og fyrir inn­rás, sam­kvæmt tölum frá Hag­stof­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent