(Ó)hollusta kókosolíu

Þær upplýsingar sem dynja á Íslendingum, og allri heimsbyggðinni, um ágæti kókosolíu byggja fyrst og síðast á löngun framleiðenda til að selja vöruna sína, ekki raunveruleikanum.

Kókoshneta
Auglýsing

Fyrir ekki svo löngu síðan var sú mann­eskja vand­fundin á Íslandi sem hafði reynslu af kókosolíu en í dag hafa senni­lega allir smakkað hana og fjöl­margir skipt út annarri olíu fyrir kókosol­í­una. Ástæðan er sú að þrátt fyrir það að vera á föstu formi við her­berg­is­hita er kókosol­ían talin mjög holl olía.

Olíur eru sam­settar úr margs­konar fitu­sýr­um. Sumar þeirra eru mjög hollar og jafn­vel lífs­nauð­syn­legar meðan aðrar fitu­sýrur eru minna hollar og jafn­vel skað­leg­ar. Þær síð­ar­nefndu geyma t.d. fitur sem eru sagðar mett­að­ar. Mett­að­ar fitur eru erf­ið­ari nið­ur­brots fyrir lík­ama okkar og geta þær valdið hækkun á slæmu kól­ester­óli í blóði. Þetta gildir ekki um ómett­aðar og þá sér­stak­lega fjöló­mett­að­ar fitur.

Góð leið til að meta hvaða olíur inni­halda mikið af mett­uðum fitum er að skoða hvernig olían er við her­berg­is­hita. Þum­al­putta­reglan er sú að olí­ur/fitur sem eru á föstu formi við her­berg­is­hita inni­halda svo mikið af mett­uðum fitu­sýrum að þær telj­ast óholl­ar. Svo virð­ist sem þessi þum­al­putta­regla gildi líka um hina margróm­uðu kókosol­íu, þrátt fyrir allt.

Auglýsing

Í rann­sókn sem Amer­ican Heart Associ­ation byggir nýj­ustu ráð­legg­ingar sínar á, kemur fram að magn ómett­aðra fitu­sýra í kókosolíu er um 82%, það er jafn­vel hærra en í smjör sem mæld­ist 63%. Til sam­an­burðar má nefna að ólífu­ol­ía, sem er mjög holl, inni­heldur 14%.

Fyrir flesta heil­brigða ein­stak­linga hefur þetta háa hlut­fall mett­aðra fitu ekki telj­andi áhrif, þ.e. ef hennar er neytt í hæfi­legu magni. Hins vegar ef ein­stak­lingur hefur mælst með of hátt kól­esteról í blóði getur inn­taka á kókosolíu haft nei­kvæð áhrif á þróun þess ástands. Hátt kól­esteról getur leitt til æða­þrengsla, því fitan getur sest til inní æð­un­um, sem svo getur leitt til stíflu og jafn­vel hjarta­á­falls.

En hvers vegna dynja á okkur upp­lýs­ingar um ágæti kókosol­í­unn­ar? Svarið er ein­falt: frá­bær mark­aðs­setn­ing! Það getur verið erfitt að skilja úr hvaða skila­boð úr umhverf­inu eru byggð á raun­veru­leik­anum og hvað er byggt á löngun fram­leið­enda til að selja vör­una sína. Því miður virð­ist það síð­ar­nefnda hafa ráðið för þegar kemur að full­yrð­ingum um kó­kosol­íu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk