Grenningarlyf sem virkar best til lengri tíma

Samkvæmt nýrri rannsókn gæti gamla megrunarlyfið phentermine nú fengið hlutverk sem langtíma lyf við offitu.

Hamborgari Mynd: Hvatinn
Auglýsing

Offita er vax­andi vanda­mál í vest­rænum ríkjum þar sem mikil þyngd getur aukið lík­urnar á líff­stílstengdum sjúk­dómum eins og syk­ur­sýki týpu tvö eða hjarta og æða­sjúk­dóm­um. Offita getur einnig valdið álagi á stoð­kerfi þeirra sem við hana glíma, svo það er til mik­ils að vinna að hjálpa fólki með offitu.

Í dag er offita álit­inn lang­tíma­sjúk­dómur og við vitum að megr­un­ar­kúrar eru ekki þær töfra­lausnir sem aug­lýs­ingar vilja meina. Lífstíls­breyt­ingar á borð við breytt mat­ar­ræði og hreyf­ingu eru alltaf besti kost­ur­inn, en í mörgum til­fellum duga þau ekki til.

Því hafa verið þróuð fjöl­mörg lyf sem geta hjálpað fólki í ofþyngd til að ná stjórn á sínum vanda. Oft eru lyfin þó dýr eða í þróun svo lítil reynsla hefur kom­ist á þau.

Auglýsing

Eitt gam­alt megr­un­ar­lyf, sem kall­ast phentermine, hefur nú mögu­lega fengið breyttan til­gang en lyfið hefur hingað til ein­ungis verið notað í skamman tíma. Þegar lyf­inu er ávísað á sjúk­linga er það yfir­leitt ein­ungis notað í 12 vik­ur, þar sem lang­tíma notkun er talin geta haft skað­leg áhrif.

Sam­kvæmt rann­sókn sem unnin var við Wake For­est Bapt­ist Med­ical Center gæti lyfið nú fengið hlut­verk sem lang­tíma lyf við offitu. Í rann­sókn­inni skoð­aði rann­sókn­ar­hóp­ur­inn heilsu­far sjúk­linga sem höfðu fengið lyf­inu ávísað til lengri tíma. Þau mátu áhrif lyfs­ins á ýmsa hjarta­tengda þætti, svo sem blóð­þrýst­ing og áhætt­una á því að fá hjarta­á­fall. Lyfið er nefni­lega örvandi og því ekki endi­lega hættu­laust að taka það, sé ekki ástæða til.

Helstu nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru að þeir sjúk­lingar sem tóku lyfið í tvö ár sáu bestan árangur við þyngd­ar­tap. Þeir ein­stak­lingar sem tóku lyfið í skemmri tíma sáu einnig árangur en þegar lyfja­töku var hætt var hætta á þyngd­ar­aukn­ingu á ný. Þegar heilsu­far þátt­tak­enda var metið í kjöl­far lang­tíma inn­töku lyfs­ins kom í ljós að engin aukin áhætta á hækk­andi blóð­þrýst­ingi eða hjarta­á­föll­um, svo dæmi séu nefnd, fylgdi inn­töku lyfs­ins.

Enn sem komið er hefur lyfið ekki verið sam­þykkt til lang­tíma notk­un­ar. Fólk ætti því alls ekki að nota það öðru­vísi en læknir ráð­leggur notkun á því. Þessi rann­sókn bendir þó til þess að þarna sé á ferð­inni mögu­leg lausn til að bæta líf og heilsu þeirra sem glíma við offitu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk