Lestrar Flóðhestar eru fjölskylduverkefni

Lestrar Flóðhestar eru ný spil fyrir börn sem eru að taka sín fyrstu skref í lestri. „Okkur fannst vanta eitthvað fjörugt og skemmtilegt í lestrarúrvalið fyrir byrjendur,“ segir Helga Árnadóttir sem hannar og myndskreytir spilin.

Helga Árnadóttir hannar og myndskreytir Lestar Flóðhesta
Helga Árnadóttir hannar og myndskreytir Lestar Flóðhesta
Auglýsing

Helga Árna­dóttir er hönn­uður og mynd­skreytir Lestrar Flóð­hesta, nýrra spila fyrir börn sem eru að taka sín fyrstu skref í lestri. Spilin eru ekki venju­legt létt­lestr­ar­efni, heldur eru þau skemmti­leg og glað­leg spil fyrir alla fjöl­skyld­una. Safnað er fyrir útgáfu spil­anna á Karol­ina Fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Spilin urðu til þegar við fjöl­skyldan vorum með heima­kennslu. Mað­ur­inn minn, ég og börnin okkar þrjú höfum verið búsett í Dan­mörku síð­ustu ár. Við erum mikið fyrir að ferðast, gera eitt­hvað öðru­vísi og brjóta upp hvers­dags­leik­ann

Á síð­asta ári tókum við eitt ár í heima­kennslu og ferða­lög, meðal ann­ars til Íslands. Þarna var yngsta barnið okkar í 1. bekk að læra að lesa. Þegar hann var búinn að læra staf­ina, kom að sjálf­sögðu að því að byrja að lesa. Þá hins­vegar lentum við í smá ves­eni, því honum fannst svona ofboðs­lega leið­in­legt að lesa! Við reyndum að finna eitt­hvað áhuga­vert og skemmti­legt létt­lestr­ar­efni fyrir hann, en sáum að það var algjör vöntun á íslensku efni fyrir byrj­endur í lestri. Fátt var í boði annað en létt­lestr­ar­bækur með engum sögu­þræði.

Auglýsing

Okkur fannst vanta eitt­hvað fjörugt og skemmti­legt í lestr­ar­úr­valið fyrir byrj­end­ur, svo ég bjó til orða­spil á litla miða sem vöktu mikla lukku og við tókum strax eftir fram­för í bæði lestr­ar­á­huga og færni hjá gutt­anum okk­ar. Það besta var að við vorum bara að spila saman fjöl­skyldan og eng­inn að hugsa um lær­dóm. Spilin urðu síðan ofur vin­sæl hjá öllum þeim sem spil­uðu með okk­ur, þannig að okkur lang­aði að gefa þau út, og leyfa fleiri krökkum að njóta.

Aðal­á­herslan hjá okkur er að spilin séu skemmti­leg, og börnin upp­lifi ekki að þau séu að læra. Okkur sýn­ist það hafa tek­ist mjög vel því spilin eru mikið spiluð þegar vinir eru í heim­sókn. Spilin eru fjöl­skyldu­verk­efni og börnin okkar eiga stóran part í því, þau hafa verið með í öllu ferl­inu. Svo er ég alveg vand­ræða­lega tækni­heft á mörgum sviðum og þá er gott að eiga mann sem er hug­bún­að­ar­sér­fræð­ingur og sér um allt tengt tækn­inni, og virð­ist hafa enda­lausa þol­in­mæði fyrir kon­unni sinni sem er stundum eins og hún sé frá stein­öld.

Spilin eru tvö. Það er Lestrar Flóð­hestar Lottó - minn­is­spil sem er fyrir 4 ára og eldri. Í því eru nokkrar útgáfur af sam­stæðu spilum sem sam­an­standa af orða­spilum og mynda­spilum og þau er hægt að spila á marga vegu. Svo er það Lestrar Flóð­hestar Sláðu slag­inn sem er fyrir 6 ára og eldri. Það er aðeins meira hraða­spil sem gengur út á að safna sem flestum spil­um, og er mjög fjörugt og skemmti­legt. Spilin eru fram­leidd á Íslandi og svans­merkt.

Við erum að fjár­magna smá hluta af fram­leiðsl­unni á Karol­ina Fund og þar er hægt að kaupa spilið áður en það kemur í búð­ir, á aðeins lægra verði. Einnig er hægt að fylgj­ast með Lestrar Flóð­hestum á Face­book, Instagram og www.­lestr­ar­flod­hest­ar.is. Við erum afskap­lega þakk­lát fyrir hvert ein­asta fram­lag og okkar von er að aðrar fjöl­skyldur og börn eigi eftir að skemmta sér og læra smá í leið­inni.

Hér er hægt að nálg­ast spil­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk