Lilli Tígur í ævintýraleit á YouTube

Lilli Tígur vill lenda í fleiri ævintýrum. Grettir Thor, 5 ára, og mamma hans safna fyrir framleiðslu á ævintýralegum, fræðandi og lifandi myndböndum fyrir börn á aldrinum 2-6 ára.

Grettir fékk sköpunargleðina í vöggugjöf & hefur frá unga aldri samið sögur, sett upp leikrit & klætt sig upp sem hina ýmsu karaktera, sem oft er erfitt að ná honum úr.
Grettir fékk sköpunargleðina í vöggugjöf & hefur frá unga aldri samið sögur, sett upp leikrit & klætt sig upp sem hina ýmsu karaktera, sem oft er erfitt að ná honum úr.
Auglýsing

Lilli Tígur og vinir hans lenda í marg­vís­legum ævin­týrum á YouTu­be. Grettir Thor Árna­son, fimm ára, og mamma hans, Þór­hildur Stef­áns­dótt­ir, safna nú fyrir fram­leiðslu á fleiri ævin­týrum Lilla Tíg­urs á Karol­ina Fund. Um er ræða barna­efni fyrir börn á aldr­inum 2-6 ára.

Þór­hildur er lærður vef- og menn­ing­ar­miðl­ari og hefur unnið við ýmsa miðlun m.a. hjá aug­lýs­inga­stof­um, Háskóla Íslands og stofn­unum síð­ast­lið­inn ár. Grettir Thor 5 ára hefur frá því hann var lít­ill verið iðinn við að búa til sög­ur, setja upp ýmsar senur og leik­stýra fólki. Þau hafa nú þegar gefið út mynd­band sem sló í gegn hjá vinum og vanda­mönnum og rataði í fjöl­miðla.

Grettir hafði verið veikur heima í nokkra daga og farið að leið­ast þegar hann fékk þá hug­mynd að búa til mynd­band með dýrum í.

Auglýsing

„Grettir hefur alltaf verið mikið fyrir dýr og veit til að mynda nöfnin á miklu fleiri dýrum en ég. Hann vissi þó að ég kynni betur á mynda­vél­ina og leit­aði því til mín með aðstoð við fram­leiðsl­una,“ segir Þór­hild­ur.

Lilli Tígur og vinir hans fara yfir vatnið. Mynd: Aðsend

Stuttu síðar var hann búinn að stilla upp leik­mynd fyrir mynd­band um lítið tígris­dýr sem fékk nafnið Lilli Tíg­ur. Í mynd­band­inu er Lilli Tígur á gangi með for­eldrum sínum þegar þau þurftu að fara yfir vatn með fullt af sjó­dýrum ofan í.

*ATH* Þau sem hafa ekki séð mynd­bandið ættu ekki að lesa lengra því í mynd­band­inu ger­ist sá harm­leikur að for­eldrar Lilla Tíg­urs deyja.

Þema verk­efn­is­ins er að leyfa Lilla Tígur að vera ævin­týra­gjörnum en á sama tíma reyna að stuðla að jákvæðum upp­lýs­ingum til áhorf­enda. Í mynd­bönd­unum verður fjallað um mhverf­is­mál, vin­áttu og ólíka menn­ing­ar­heima og munu þau höfða til 2-6 ára barna.

Nú hefur Lilli Tígur hug á að halda út í heim og lenda í fleiri ævin­týrum og hefur því verið sett upp söfnun fyrir fram­leiðslu á fleiri mynd­böndum af Lilla Tígur og vinum hans á www.karolina­fund.is.

Þór­hildur og Grettir eru spennt að fram­leiða meira efni, en vilja gera enn bet­ur.

Þau vilja fá fleiri raddir með, leita til sér­fræð­inga með aðstoð við hand­rits­gerð og frá­sögn og leggja mikla áherslu á að það sé íslenskt efni aðgengi­legt á Youtube fyrir börnin á Íslandi.

Hér má styrkja Lilla Tígur og vini hans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk