Ásta Hrönn Harðardóttir og Þorsteinn Marinósson eru sannarlega framkvæmdaglatt fólk og óhrædd við að feta nýjar slóðir. Dag einn stukku þau út í djúpulaug „nördaheimsins“ og má segja að þau séu nú djúpt sokkin.
Sú ákvörðun, með aðstoð góðra vina og vandamanna, varð til þess að nú er risin upp fyrsta verslun sinnar tegundar á Akureyri, spilasalurinn Goblin, ásamt því sem þau kalla „skapandi spilamiðstöð“. Þar kemur fólk saman á ýmsa spilatengda viðburði, til spila og spjalla.
Hvernig vaknaði hugmyndin að verkefninu?
„Í raun má segja að hugmyndin af verkefninu hafi kviknað fyrir um 20 árum, þegar ég fór með bróður mínum í fyrsta skipti inn í Nexus í Reykjavík, sem þá var staðsett á Hverfisgötunni,“ segir Ásta.
„Þarna uppgötvaði ég alveg nýjan heim. Mjög öðruvísi, en heillandi þrátt fyrir að ég skildi nú ekki mikið í mörgu því sem þarna var til sölu. Okkur systkinunum er spilamennska í blóð borin, alin upp við skák, félagsvist og spilað ófá borðspilin saman svo ég tengdi þó við margt. Systkini mín voru þarna búin að kynnast spilum á borð við Warhammer, Magic the Gathering og D&D og ég að taka námskeið í nýsköpun.“
Ásta segir hugmyndafræðina í kringum öðruvísi spil áhugaverða, spil sem eru mjög skapandi, eins og hlutverkaspil. „Ég fór að velta þessum bransa fyrir mér. Við byrjuðum svo að leika okkur með hugmyndir um að opna svona búð á Akureyri, en svo lagðist sú hugmynd í dvala um nokkurt skeið.“
„Svo kom að þeim tímapunkti löngu síðar að ég vildi gera eitthvað nýtt og stofna mitt eigið fyrirtæki. Þá vaknaði þessi hugmynd hjá mér aftur, því bæði börnin mín og systkinabörn voru komin með brennandi áhuga á þessum heimi. Upphaflega ætluðum við Steini bara að reka „litla vefverslun“ með smá lageraðstöðu á Akureyri. En eitt leiddi af öðru og oft þegar við fáum hugmyndir saman, verða þær oft aðeins stærri en við ætluðum og gerast oft mjög hratt!“
Skjálaus samvera
Ásta segir að verkefnið hafi loks farið af stað þar sem þau kynntust frábærum og öflugum hópi spilara.
„Þar fengum við svo rosalega jákvæðar og góðar móttökur og ómetanlegan stuðning í því sem við vorum að gera að boltinn fór að rúlla. Það sýndi okkur hversu jákvætt og valdeflandi samfélag er í kringum þessi spil. Við áttuðum okkur betur á mikilvægi þess að skapa þarna ákveðna miðju í bænum til að gera það auðveldara hittast og tengjast öðrum með sömu áhugamál.“
Þannig varð til áhuginn á að reka spilamiðstöð. „Þessi frábæri hópur fer svo bara stækkandi og erum við alltaf að kynnast nýju, skemmtilegu og skapandi fólki,“ segir Ásta.
Þema verkefnisins er „skapandi spilamiðstöð“. „Það felur í sér að við leggjum áherslu á spil sem efla félagsleg tengsl og sköpunarkraft. Til þess að skapa góða og þægilega stemningu þurfum við hlýlegt og notalegt rými. Einnig að hafa ýmsa aukahluti og húsgögn sem þarf fyrir spilin til staðar. Því söfnum við fjármagni fyrir bæði aðföngum og vinnu, til þess að geta haft aðstöðuna opna öllum án endurgjalds. Aðstaðan er opin spilaáhugafólki til afnota á opnunartíma verslunarinnar og eru þar ýmsir skemmtilegir viðburðir flesta daga sem vert er að kynna sér.“
Kjarninn í starfseminni er áherslan á skjálausa samveru.
„Okkur finnst afar mikilvægt að börn og fullorðnir stundi áhugamál sem styrkja félagsleg tengsl og efla skapandi hugsun en týni sér ekki í skjátækjum. Það er eitt af því sem við erum hvað stoltust af við spilasalinn okkar. Hjá okkur er tækifæri til þess að gleyma sér við skjálausa skemmtun. Það er eitthvað sem okkur er mjög hugleikið. Við teljum spilasalinn geta þjónað því mikilvæga hlutverki að vera friðsælt afdrep í hraða nútímans,“ segir Ásta.