Hávær ljóð með Drinni & The Dangerous Thoughts á vínyl

Drinni gaf í sumar út plötu um hatur á morgnum, óhjákvæmilegan dauðann og eymdina þar til hann loksins kemur. En líka með smá húmor. Hann safnar fyrir útgáfu plötunnar á vínyl á Karolina Fund.

Andri Kristinsson
Auglýsing

Drinni er lista­manns­nafn Andra Krist­ins­son­ar. Hann er gít­ar­leik­ari, söngv­ari, og laga- og texta­smið­ur. Drinni er heil­inn og sálin á bak við verk­efnið Drinni & the Dan­ger­ous Thoughts sem í sumar gaf út plöt­una Hávær ljóð á staf­rænu formi. Nú á að koma henni á vín­yl.

Andri segir hug­mynd­ina að verk­efn­inu hafa vaknað úr neyð. „Ég hafði planað að flytja til Belgíu í lok mars 2020. Af aug­ljósum ástæðum (covid19)  varð lítið úr því þá og ég fest­ist á Íslandi svo ég hafði ekk­ert betra að gera en semja lög og vona að hlut­irnir skán­uðu ein­hvern tím­ann. Þó eru þrjú lög þarna sem ég hafði samið löngu áður en mér þótti passa vel við þem­að. Drinni & The Dan­ger­ous Thoughts er í raun sól­ó­verk­efnið mitt, hug­myndin er að tón­list­ar­menn geta komið og farið og lögin eru útsett með þeim sem eru í band­inu hverju sinni. Nú eftir að tak­mörk­unum var aflétt eftir covid bý ég í Belgíu og er kom­inn með nýjan kjarna tón­list­ar­manna sem ég mun útsetja með nýtt efn­i.“

Hann neitar því ekki að þema plöt­unnar sé oft ansi þung­lynd­is­legt. „Hatur á morgn­um, óhjá­kvæmi­legur dauð­inn og eymdin þar til hann loks­ins kem­ur, en það er húmor þarna lík­a.“

Auglýsing
Stefnt er að því að gefa út plöt­una Hávær ljóð undir merkjum plötu­út­gáf­unnar MBS skífur eða Mann­fólkið breyt­ist í slím skíf­ur, sem er sam­starfs­verk­efni nokkra tón­list­ar­manna á Akur­eyri og hafa allt frá árinu 2010 gefið út tón­list undir sam­eig­in­legum merkj­um. „MBS hefur einnig staðið fyrir tón­list­ar­há­tíð­inni Mann­fólkið breyt­ist í slím, sem haldin er árlega á Akur­eyri síðan 2018. Meg­in­stefna og mark­mið hátíð­ar­innar er að gera jað­ar- og gras­rót­ar­tón­list hátt undir höfði þar sem lögð er sér­stök áhersla á tón­list úr nærum­hverf­inu. Ég hef t.a.m. komið fram á tón­list­ar­há­tíð­inni árlega frá 2018 með þremur atrið­um. MBS hefur áður gefið út eina plötu á vínyl sem kom út 2021 og nú er stefnt að annarri útgáfu. Mark­miðið með söfn­un­inni er ekki aðeins að gefa út Hávær ljóð heldur að skapa grund­völl fyrir reglu­legum útgáfum sem rata í hinn efn­is­lega heim . Fram­haldið og mark­miðið er því að reyna að byggja upp vett­vang til frek­ari útgáfu og sköp­un­ar.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk