Vill gefa út valdeflandi feminískt verk á fagurblárri kassettu

Platan Lipstick On með Fríðu Dís Guðmundsdóttur kom nýverið út. Hún safnar nú fyrir útgafú hennar á vínyl og kasettu á Karolina Fund.

Lipstick On - prómó_002
Auglýsing

Fríða Dís Guð­munds­dóttir gaf nýverið út sína aðra sóló­plötu sem ber heitið Lip­stick On og hefur hlotið ein­róma lof gagn­rýnenda. Fríða var áður í hljóm­sveitum á borð við Klass­art, Eldum og Trilogiu en leggur nú ofurá­herslu á sínar eigin laga­smíð­ar. Á döf­inni eru tvennir útgáfu­tón­leikar Lip­stick On í októ­ber, einir í Hljóma­höll og aðrir á Sirkus en hægt er að næla sér í miða á tón­leik­ana í Hljóma­höll á tix.is.

Aðspurð um hvernig hug­myndin að Lip­stick On hafi kviknað segir Fríða að lista­gyðjan hafi verið henni ansi gjöful und­an­farin tvö ár. „Lip­stick On verður í raun­inni til út frá ann­ari plötu sem ég hafði þegar samið og byrjuð að hljóð­rita. Lögin héldu samt áfram að streyma til mín og allt í einu var ég komin með banka af lögum sem áttu ekki beint sam­an. Ég var að viðra hug­myndir mínar og vand­ræð­ast með að ráð­ast í að hljóð­rita 20 laga plötu þegar Har­aldur Svein­björns­son félagi minn spyr mig hvort ég sé kannski að vinna í tveimur plöt­um. Auð­vit­að! Eftir að ég stokk­aði lög­unum upp var það deg­inum ljós­ara að ég væri með tvö nokkuð ólík verk á prjón­unum og þegar strúkt­úr­inn var kom­inn var auð­veld­ara að stilla lög­unum saman og semja fleiri til að skapa tvö heild­stæð verk. Lip­stick On er annað þeirra.“ 

Auglýsing
Hún segir að Lip­stick On sé vald­efl­andi femínískt verk þar sem spil­a­gleði og flæði eru í algleym­ingi. „Á plöt­unni er að finna frum­samið, popp­skotið rokk með áhrifum úr ýmsum átt­um, sér í lagi frá sjö­unda og tíunda ára­tugn­um. Rauði þráð­ur­inn á plöt­unni er að skapa pláss til að njóta lífs­ins þrátt fyrir þau krefj­andi verk­efni sem okkur eru fal­in, setja á á sig vara­lit og mæta ótt­anum og öllu því sem heldur aftur að okk­ur.“

Fríða Dís segir það gera mikið fyrir hennar tónlistarupplifun að hlusta á tónlist í físísku formi. Mynd: Aðsend

Fríða seg­ist elska rómans­inn við að hlusta á tón­list á físísku formi. End­ur­komnar vin­sældir vín­yl­plöt­unnar á und­an­förnum árum henti því en Fríða vill líka gefa plöt­una sína út á kasettu. „Það gerir per­sónu­lega mikið fyrir mína tón­list­ar­upp­lifun og ég vil því geta boðið fólki að njóta minna verka á þennan hátt. Á plöt­unni er líka að finna lag sem heitir Cats & Cas­settes og því kom ekki annað til greina en að fram­leiða 50 kasettur í stíl. Sjálf hlust­aði ég mikið á kasettur í æsku og alveg fram eftir ung­lings­aldri, mamma gaf mér t.d. kasettur með Elvis Presley og Roy Orbi­son og svo fór ég ekki út úr húsi nema með aðra plötu Prodigy, Music for the Jilted Gener­ation, í vasa­diskó­inu. Ég safn­aði fyrir vín­yl­út­gáfu fyrstu plöt­unnar minn­ar, Mynda­albúm, hjá Karol­ina Fund og hef af því góða reynslu og ákvað því að fara aftur þessa leið til að standa undir útgáfu­kostn­aði.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk