Borgir í bráðri hættu sé hlýnun jarðar ekki beisluð

Um 7,8 milljónir manns búa á svæðum sem verða undir sjávarmáli gangi svartsýnustu spár um hlýnun jarðar eftir.

Í Feyneyjum er það orðið að nær árlegum atburði að yfirborð sjávar sökkvi strætum borgarinnar; það sem heimamenn kalla „acqua alta“. Ferðamenn standa þá á sérútbúnum pöllum til að virða fyrir sér Markúsartorgið.
Í Feyneyjum er það orðið að nær árlegum atburði að yfirborð sjávar sökkvi strætum borgarinnar; það sem heimamenn kalla „acqua alta“. Ferðamenn standa þá á sérútbúnum pöllum til að virða fyrir sér Markúsartorgið.
Auglýsing

Eitt mest aðkallandi vanda­málið sem steðjar að mann­kyn­inu vegna hlýn­unar jarðar er hækkun yfir­borðs sjávar um allan heim vegna bráðn­unar jökla og haf­íss. Ef ekk­ert verður að gert mun hita­stig jarðar að öllum lík­indum vera fjórum gráðum hærra árið 2100 en það var fyrir iðn­bylt­ingu. Komi til þess munu margar af stærstu borgum í heimi sökkva í sæ.

Mark­mið lofts­lags­ráð­stefn­unnar í París í des­em­ber (COP 21) er að kom­ast að bind­andi sam­komu­lagi allra aðild­ar­landa um minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda til árs­ins 2030. Hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum (SÞ)hefur verið samið um að tveggja gráðu hlýnun til árs­ins 2100 sé sann­gjörn, en það er hins vegar ákvörðun um að sökkva strætum borga sem standa lágt eins og Hong Kong, Mel­bo­ur­ne, Vancou­ver og Was­hington D.C.

Auglýsing

Gangi verstu spár eftir þá búa 7,8 millj­ónir manna nú á svæði sem verður undir sjáv­ar­máli árið 2100. Það er ef yfir­borð sjávar hækkar um meira en tvo metra vegna hlýn­unar jarð­ar. Hækki yfir­borð sjávar um aðeins 0,2 metra þá er gert ráð fyrir að 1,3 milljón manns muni þurfa að flytja inn til lands.

Í aðdrag­anda COP 21 áttu allar aðild­ar­þjóðir að lofts­lags­ráð­stefnu SÞ að skila eigin mark­miðum í stefnu­mótun sinni í lofts­lags­mál­um. Nú þegar hafa nær allar þjóð­irnar skilað gögn­um. Sam­kvæmt útreikn­ingum og áætl­unum skrif­stofu SÞ um lofts­lags­mál í Bonn munu þessi mark­mið aðeins duga hálfa leið að mark­mið­inu um að halda hlýnun jarðar undir tveimur gráðum árið 2100. Allt lítur út fyrir að hlýn­unin verði um 2,7 gráður verði ekk­ert að gert.

Líkön Climate Central og Surging Seas sýna hvaða svæði eru í mestri hættu. Líkanið af Reykja­vík er kannski ekki full­komið en lík­lega yrðu stræti mið­borg­ar­innar undir sjáv­ar­máli árið 2100 ef hlýnun jarðar verður ekki beisl­uð. Land­fræði­leg staða Reykja­víkur er hins vegar þannig að hér risi að öllum lík­indum land ef Græn­lands­jök­ull minnkar veru­lega.

Hér að neðan má sjá mynd­bönd og kort byggð á lík­önum Climate Central og Surging Seas.



Was­hington D.C. árið 2100



Rio de Jan­eiro árið 2100



London árið 2100



Upp­fært: Skilja mátti á frétt­inni að 7,8 millj­ónir manna myndu búa á svæði sem verður undir sjáv­ar­máli árið 2100. Það hefur verið lag­að.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None