Lífeyrissjóðirnir bjóða upp á lang hagstæðustu húsnæðislánin

Húsnæði í Reykjavík
Auglýsing

Gildi líf­eyr­is­sjóður hef­ur, líkt og Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, lækkað vexti á þeim lánum sem sjóð­ur­inn veitir sjóðs­fé­lög­um sín­um. Gildi býður nú lægstu föstu verð­tryggðu vexti sína frá upp­hafi og aðr­ir vextir sem sjóð­ur­inn býður upp á eru með þeim lægstu sem í boði eru á hús­næð­is­lána­mark­aðnum í dag.

Mikil hreyf­ing hefur verið á hús­næð­is­lána­mark­aðnum síðan að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna kynnti mjög umfangs­miklar lækk­anir á þeim kjöru­m ­sem hann býður 150 þús­und sjóðs­fé­lögum sínum í byrjun októ­ber síð­ast­lið­ins. Þau ­kjör, og raunar kjörin sem Gildi býður líka, eru miklu hag­stæð­ari en þau kjör ­sem stóru við­skipta­bank­arnir bjóða. Á verð­tryggðum breyti­legum vöxtum munar til­ að mynda tæp­lega 14 pró­sent á lægstu vöxt­unum (Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna) og þeim hæstu (Arion banki og Lands­bank­inn).

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna hef­ur orðið „tölu­verð aukn­ing“ í lán­töku hjá sjóðnum síðan að hann til­kynnti um breyt­ing­arn­ar.

Auglýsing

Sprengja inn á hús­næð­is­lána­mark­að­inn

Í októ­ber til­kynnti Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna að hann hefði lækkað vexti á verð­tryggðum líf­eyr­is­sjóðs­lán­um, að sjóðs­fé­lögum bjóð­ist ó­verð­tryggð lán, að láns­hlut­fall hafi verið hækkað í 75 pró­sent og að lán­töku­kostn­aður hafi verið lækk­aður í 0,75 pró­sent.

Sjóðs­fé­lögum Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna bjóð­ast nú 3,6 ­pró­sent verð­tryggðir fastir vext­ir, 3,15 pró­sent verð­tryggðir breyti­leg­ir vextir og 6,97 pró­sent fastir óverð­tryggðir vextir í 36 mán­uði.

Það eru miklu lægri kjör en við­skipta­bank­arnir bjóða á sam­bæri­legum lán­um. Arion banki býður til að mynda 3,65 pró­sent verð­tryggða vexti og 7,15 pró­sent fasta óverð­tryggða vexti í 36 mán­uði. Lands­bank­inn býð­ur­ ­sömu breyti­legu verð­tryggðu vexti en 7,3 pró­sent fasta óverð­tryggða vexti í 36 ­mán­uði. Íslands­banki býður ekki upp á breyti­lega verð­tryggða vexti en lán­ar þess í stað lán á föstum verð­tryggðum til fimm ára (3,95 pró­sent). Óverð­tryggð­u ­föstu vextir þess banka til 36 mán­aða eru 7,25 pró­sent.

Gildi lækkar sín kjör

Nú hefur Gildi líf­eyr­is­sjóður ákveðið að bjóða upp á lægri fasta verð­tryggða vexti til 36 mán­aða en nokkur annar á mark­aðn­um, eða 3,55 pró­sent. Breyti­legir verð­tryggðir vextir eru mun lægri en hjá bönk­unum (3,2 pró­sent) og breyti­legir óverð­tryggðir vextir 6,75 pró­sent, ­sem er mun lægra en hjá bönk­un­um. Láns­hlut­fall þeirra lána sem bjóð­ast á þessum ­kjörum er þó enn 65 pró­sent þótt hægt sé að fá tíu pró­sent við­bót­ar­lán á hærri ­kjör­um. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna býður sínum sjóðs­fé­lögum upp á 75 pró­sent lán og bank­arnir sínum við­skipta­vinum upp á 70 pró­sent af verð­mæti eign­ar, en ­bjóða síðan upp á dýr­ari við­bót­ar­lán til þeirra sem þurfa á þeim að halda.

Gildi lækk­aði auk þess lán­töku­kostnað sinn niður í 0,5 ­pró­sent fyrir nokkru síð­an, sem þýðir að hann er helm­ingur þess sem hann er hjá við­skipta­bönk­um lands­ins, þar sem lán­töku­kostn­að­ur­inn er eitt pró­sent. Til ein­föld­unar þýð­ir þetta að lán­taki sem tekur 30 millj­óna króna lán greiðir 150 þús­und krónur í lán­töku­kostnað hjá Gildi en 300 þús­und hjá bönk­un­um.

Bank­arnir þurfa að eiga meira eigið fé

Við­skipta­bank­arnir hafa ekki brugð­ist við þessum breyt­ing­um ­með þeim hætti að lækka þau kjör sem þeir bjóða sínum við­skipta­vinum upp á niður í það sem líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa verið að bjóða.  Þeir hafa borið fyrir sig tvenns konar ástæð­ur­ ­sem skerði sam­keppn­is­stöðu þeirra gagn­vart öðrum lán­veit­endum á mark­aðn­um. Í fyrsta lagi eru þeir skyldugir sam­kvæmt lögum til að eiga mun ­meira eigið fé en líf­eyr­is­sjóð­ir. Í lok árs 2014 var eigið fé Íslands­banka, ­Arion banka og Lands­banka sam­an­lagt tæpir 600 millj­arðar króna. Það er reynd­ar nokkuð umfram eig­in­fjár­kröfu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem eru að jafn­aði yfir 19 ­pró­sent. Líf­eyr­is­sjóð­irnir þurfa ekki að sitja á svona miklu eigin fé. Raun­ar eiga þeir ekk­ert eigið fé. Þeirra hlut­verk er að taka við yfir hund­rað millj­örðum krónum sem lands­mönnum er gert að greiða í þá árlega og ávaxta það fé í minnsta lagi um 3,5 pró­sent verð­tryggt á ári.

Lána­kjör verri vegna banka­skatts

Í öðru lagi þurfa stóru við­skipta­bank­arnir að greiða banka­skatt og sér­stakan fjár­sýslukatt. Efna­hags­svið ­Sam­taka atvinnu­lifs­ins áætlar greiðsla þeirra sé ígildi um 15 pró­sent af þeim vaxta­mun sem bank­arnir inn­heimtu árið 2014.

Stjórn­endur bank­anna segja í einka­sam­tölum að þeir gætu boðið almenn­ingi betri kjör ef þeir væru ekki að ­borga þessa skatta. Banka­skatt­ur­inn er til að mynda 0,376 pró­sent skattur á allar skuldir bank­anna. Því sé hann bein­línis álag ofan á útlán. Með öðrum orð­u­m er almenn­ingur að borga banka­skatt­inn - sem not­aður hefur verið til að skila ­rík­is­sjóði afgangi und­an­farin ár – að minnsta kosti að hluta. 

Sam­tals greidd­u ­Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn átta millj­arða króna í banka­skatt í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None