Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, hefur sent Stefáni Thors, nýráðnum húsameistara ríkisins, bréf um uppbyggingu á stjórnarráðsreit. Í því er lýst vilja borgarinnar um að þrjú gömul hús fái að standa áfram á reitnum. Bréfið var lagt fram á fundi borgarráðs í morgun og er ítrekun á erindi borgarstjóra til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðsherra sem dagsett er 12. febrúar 2014.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá borgarstjóra.
Í erindi Dags til forsætisráðherra var vakin athygli á því að „borgarráð hafi falið umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar að endurskoða skipulag reitsins í ljósi hugmynda um að Listaháskóli Íslands myndi koma sér betur fyrir á reitnumm“ segir í tilkynningunni. „Í dag er starfsemi skólans á reitnum meðal annars í nokkurs konar sumarhúsum sem komið var fyrir með bráðabirgðaleyfum. Þá vekur borgarstjóri athygli forsætisráðherra á því að samkvæmt gildandi deiliskipulagi megi rífa fjögur steinhús á reitnum en eitt þeirra, svokallað Landssímahús sem Guðjón Samúelsson teiknaði, hefur þegar verið rifið,“ segir ennfremur.
Í bréfinu til húsameistara segir að Reykjavíkurborg vilji eindregið að „þau þrjú hús sem standa eftir á reitnum fái að standa jafnvel þótt það kalli á róttæka endurskoðun á hugmyndum um uppbyggingu í þágu stjórnarráðsins á reitnum. Þessi hús eru Lindargata 3, hús Hæstaréttar sem hannað er af Guðjóni Samúelssyni, Lindargata 7, hús Jóns Þorsteinssonar sem hannað var af Einari Sveinssyni og friðað árið 2011 og Sölvhólsgata 13 sem hannað var af Einari Sveinssyni,“ að því er segir í tilkynningunni.
Dagur ítrekar í bréfinu vilja borgarinnar til að eiga gott samstarf um endurskoðun skipulags og uppbyggingar á reitnum „í sátt við söguna og segir borgina fagna betri nýtingu reitsins og frágangi á honum því að hann sé að ýmsu leyti til skammar.“