Borgin vill friða hús á stjórnarráðsreitnum

Reykjavíkurborg hefur sent bréf til húsameistara ríkisins, þar sem fjallað er um friðun á stjórnarráðsreit.

dagur b. eggertsson
Auglýsing

Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík, Dagur B. Egg­erts­son, hefur sent Stef­áni Thors, nýráðnum húsa­meist­ara rík­is­ins, bréf um upp­bygg­ingu á stjórn­ar­ráðs­reit. Í því er lýst vilja borg­ar­innar um að þrjú gömul hús fái að standa áfram á reitn­um. Bréfið var lagt fram á fundi borg­ar­ráðs í morgun og er ítrekun á erindi borg­ar­stjóra til Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráðs­herra sem dag­sett er 12. febr­úar 2014. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá borg­ar­stjóra. 

Í erindi Dags til for­sæt­is­ráð­herra var vakin athygli á því að „borg­ar­ráð hafi falið umhverf­is- og skipu­lags­sviði Reykja­vík­ur­borgar að end­ur­skoða skipu­lag reits­ins í ljósi hug­mynda um að Lista­há­skóli Íslands myndi koma sér betur fyrir á reitn­umm“ segir í til­kynn­ing­unni. „Í dag er starf­semi skól­ans á reitnum meðal ann­ars í nokk­urs konar sum­ar­húsum sem komið var fyrir með bráða­birgða­leyf­um. Þá vekur borg­ar­stjóri athygli for­sæt­is­ráð­herra á því að sam­kvæmt gild­andi deiliskipu­lagi megi rífa fjögur stein­hús á reitnum en eitt þeirra, svo­kallað Lands­síma­hús sem Guð­jón Sam­ú­els­son teikn­aði, hefur þegar verið rif­ið,“ segir enn­frem­ur.

Auglýsing

Í bréf­inu til húsa­meist­ara segir að Reykja­vík­ur­borg vilji ein­dregið að „þau þrjú hús sem standa eftir á reitnum fái að standa jafn­vel þótt það kalli á rót­tæka end­ur­skoðun á hug­myndum um upp­bygg­ingu í þágu stjórn­ar­ráðs­ins á reitn­um. Þessi hús eru Lind­ar­gata 3, hús Hæsta­réttar sem hannað er af Guð­jóni Sam­ú­els­syni, Lind­ar­gata 7, hús Jóns Þor­steins­sonar sem hannað var af Ein­ari Sveins­syni  og friðað árið 2011 og Sölv­hóls­gata 13 sem hannað var af Ein­ari Sveins­syn­i,“ að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Dagur ítrekar í bréf­inu vilja borg­ar­innar til að eiga gott sam­starf um end­ur­skoðun skipu­lags og upp­bygg­ingar á reitnum „í sátt við sög­una og segir borg­ina fagna betri nýt­ingu reits­ins og frá­gangi á honum því að hann sé að ýmsu leyti til skamm­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None