Mark Zuckerberg, stofnandi of forstjóri Facebook, og eiginkona hans Pricilla Chan ætla að gefa 99 prósent af virði hlutar þeirra í Facebook til góðgerðarmála. Hluturinn er sem stendur metinn á 45 milljarða dali, tæplega sex þúsund milljarða króna. Þetta tilkynnti Zuckerberg í opnu bréfi til nýfæddrar dóttur sinnar, Max, sem hann birti á Facebook-síðu sinni í kvöld.
Auglýsing