Fjórir fjárfestahópar munu ganga til viðræðna um kaup á öllum eignum Hildu, dótturfélags Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ). Hóparnir fjórir voru settir saman af fjármálafyrirtækjunum Arctica Finance, Virðingu, Kviku fjárfestingarbanka (sameinaður banki Straums og MP banka) og ALM Verðbréfum. Þetta kemur fram í DV í dag.
Hilda á 364 fasteignir sem bókfærðar eru á 6,6 milljarða króna, 387 útlán (til 260 lántakenda) og önnur skuldabréf sem metin eru á 5,7 milljarða króna og handbært fé/kröfur upp á 2,9 milljarða króna. Hilda á alls sex dótturfélög og hjá félaginu starfa 13 manns. Það hagnaðist um 1,5 milljarð króna á fyrstu sex mánuðum ársins og munaði þar langmestu um hreinar rekstrartekjur, sem eru sala eigna og lána á tímabilinu. Auk þess námu leigutekjur 139 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins.
Hefur leikið stórt hlutverk í „viðskiptum“ ESÍ
Sumarið 2011 tók ESÍ yfir félag sem heitir Hilda. Það hafði verið sett á fót til að halda utan skuld Saga Capital við ríkissjóð, en hann hafði veitt bankanum 19,6 milljarða króna fyrirgreiðslu í mars 2009. Sú fyrirgreiðsla dugaði ekki til að halda Sögu á lífi og Hilda endaði í fangi ESÍ.
Síðan þá hefur Hilda leikið stórt hlutverk í „viðskiptum“ ESÍ.
Í lok árs 2013 var hluti eigna og skulda hins alræmda félags Dróma hf. (eignasafns SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans) fært til Hildu. Um var að ræða fyrirtækjalán og fullnustueignir Dróma, meðal annars það íbúðahúsnæði sem félagið hafði gengið að á starfstíma sínum. Einstaklingslán Dróma fóru hins vegar til Arion banka.
Við þessa breytingu jukust eignir Hildu mikið. Allt í einu voru bókfærðar eignir félagsins metnar á 32,5 milljarða króna. Stór hluti þeirra voru myndalegt fasteignasafn, en það verður að teljast afar óvenjuleg staða fyrir seðlabanka að eiga stórt safn fasteigna. Kjarninn fjallaði um umsvif Hildu á fasteignamarkaði í apríl 2014. Í þeim kom fram að Hilda héldi á þeim tíma á 350 fasteignum, 250 íbúðum og um 100 fasteignum sem teljast til atvinnuhúsnæðis. Hluti íbúðanna vöru í útleigu, aðrar voru í söluferli og sumar voru ekki í íbúðarhæfu ástandi. Á þessum tíma var því komin upp sú sérstaka staða að Seðlabanki Íslands var, í gegnum dótturfélag sitt, að selja íbúðir á markaði. Í fréttaskýringu Kjarnans í apríl 2014 kom enn fremur fram að Hilda kappkostaði að selja eignir ekki of hratt „þar sem slíkt gæti haft mikil áhrif á fasteignamarkaðinn og jafnvel stuðlað að lækkun fasteignaverðs.“
Þurftir að eiga 750 milljónir til að taka þátt
Í ágúst Hilda auglýst til sölu. Í því söluferli gekk Seðlabankinn út frá því að lánsfjármögnun hans til Hildu, alls 12,6 milljarðar króna, verði greidd upp til viðbótar við greiðslu fyrir hlutafé félagsins. Því var ljóst að kaupverðið mun hlaupa á milljörðum króna.
Arion banki sér um söluna. Samkvæmt skilyrðum sem sett voru fyrir þátttöku í söluferlinu þurftu fjárfestar að sýna fram á að þeir eigi að lágmarki 750 milljónir króna sem þeir geti nýtt til fjárfestingar í félaginu til að fá að taka þátt.
Í DV í dag segir að frestur til að skila inn tilboðum í Hildu hafi runnið út 20. nóvember síðastliðinn. Á meðan að á söluferlinu stóð var ákveðið að víkja frá því skilyrði að áhugasamir fjárfestar þyrftu að leggja fram skuldbindandi tilboð í eignasafnið. Þeir munu þó ekki geta keypt eignirnar á lægra verði en fyrirliggjandi tilboð þeirra hljóðar upp á.
Þótt Hilda seljist þá er uppgjöri Seðlabankans á hruninu fjarri því lokið. ESÍ er enn í fullu fjöri og eignir félagsins voru metnar á 209 milljarða krona um síðustu áramót og hækka líkast til umtalsvert þegar slitum á búum föllnu bankanna verður lokið. Þeim á enn eftir að koma í verð.