Fleiri konur fjármagna sig í gegnum Karolina fund en karlar

Karolina fund kyn
Auglýsing

Fleiri konur hafa náð að full­fjár­magna verk­efni í gegnum hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­una Karol­ina Fund en karl­ar. Alls eru 51 pró­sent þeirra verk­efna sem hafa ver­ið ­full­fjár­mögnuð leidd af konum en 49 pró­sent af körl­um. Karlar hafa þó safnað hærri ­upp­hæð að með­al­tali en kon­ur, en þeir setja líka setja sér líka hærri mark­mið í söfn­unum sín­um.

Þetta kemur fram í tölum sem Karol­ina Fund hefur lát­ið Kjarn­anum í té. Um er að ræða öll þau verk­efni sem hafa reynt að fjár­magna sig í gegnum vef­inn frá því að hann var settur í loftið í októ­ber 2012. Af þeim 229 verk­efnum sem hafa reynt að hóp­fjár­magna sig á frá byrjun og þar til í lok ­síð­ustu viku í gegnum Karol­ina Fund hefur 175 tek­ist ætl­un­ar­verk­ið, eða 76 ­pró­sent. Því ná þrjú af hverjum fjórum verk­efnum sem sett eru af stað á Karol­ina Fund söfn­un­ar­mark­miði sínu og verða að veru­leika. 

Frá því að sú ­töl­fræði var tekin saman hefur fjár­mögn­uðum verk­efnum fjölgað enn meira, og eru nú 188 tals­ins. Alls hafa 19.323 manns heitið sam­tals 1.036.472 evr­um, um 147 millj­ónum króna á gengi dags­ins í dag, á verk­efni sem birst hafa á Karolina­fund.com.

Auglýsing

Tón­list, bækur kvik­myndir og afþrey­ing

Karol­ina fund var stofnað árið 2012. Fyr­ir­tækið er vett­vangur þar sem hægt er að setja inn hug­mynd, finna hæfi­leika til að starfa að hug­mynd­inni og ná í fjár­magn til þess að gera hana að veru­leika. Fjár­mögn­unin gengur þannig fyrir sig að sett eru ­mark­mið um hversu mikið fjár­magn hvert verk­efni þarf að ná til að fjár­magna sig og áhuga­samir geta síðan heitið á verk­efn­in. Ef mark­miðin nást greiða þeir sem hétu á verk­efnin og í flestum til­fellum fá þeir eitt­hvað í stað­inn, t.d. ef verk­efnið er bóka­skrif þá fá þeir ein­tak af bók­inni. Þetta kallast hóp­fjár­mögnun og er stundað víða um heim, til dæmis á þekktum síðum eins og Indigogo og Kickstart­er.

Fullfjármögnuð verkefni eftir flokk.Verk­efnin sem hafa náð að fjár­magna sig með þessum hætti eru alls­kon­ar. Af full­fjár­mögn­uðum verk­efnum eru 35 pró­sent tón­list­ar­verk­efni, 25 ­pró­sent bækur eða tíma­rit, 13 pró­sent listir og afþrey­ing og 11 pró­sent ­kvik­mynd­ir.

Kjarn­inn hefur lengi verið í sam­starfi við Karol­ina fund og birt verk­efni vik­unnar á hverjum laug­ar­deg­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None