Yfir 60 prósent Íslendinga treysta ekki stjórnarflokkunum til að selja bankana

15377657853_2d6e3e826f_c.jpg
Auglýsing

61,4 pró­sent lands­manna treysta ekki Fram­sókn­ar­flokknum og ­Sjálf­stæð­is­flokknum til að selja hluti rík­is­ins í þeim bönkum sem það á. Ein­ung­is 21,5 pró­sent treysta stjórn­ar­flokk­unum vel fyrir verk­efn­inu en 17,2 pró­sent svara hvorki né. Þetta kemur fram í könnun sem Gallup hefur gert fyr­ir­ ­þing­flokk Pírata og sagt er frá í Frétta­blað­inu í dag. Þar var spurt: „ „Hversu vel eða illa treystir þú núver­andi rík­is­stjórn til að ­sjá um sölu á hlut rík­is­ins í bönk­um?“

Sam­kvæmt þessu treystir ein­ungis um fimmti hver Íslend­ingur flokk­unum tveimur til að selja þá eign­ar­hluti í bönkum sem ­ríkið held­ur, eða mun halda, á. Háskóla­mennt­aðir treysta þeim minnst ásam­t í­búum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og yngra fólki, í ald­urs­hópnum 25 til 34 ára.

Könn­unin var fram­kvæmd af Gallup fyrir þing­flokk Pírata, dag­ana 3. til 14. des­em­ber. 1.433 voru í úrtaki Gallup, 881 svar­aði könn­un­inni eða 61,5 pró­sent.

Auglýsing

Einka­væð­ing banka framundan

Rík­is­stjórnin hefur þegar gert það ljóst að til standi að selja 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum á árinu 2016. Sam­hliða stendur til að skrá Lands­bank­ann á mark­að.

Þá hefur Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lýst því yfir að það sé ekki heilla­væn­legt að ríkið eigið Íslands­banka, sem ríkið fær eign­ast að fullu eftir að stöð­ug­leika­fram­lag Glitnis verður greitt, til lengri tíma. Það má því telja nokkuð öruggt að hann verði settur í sölu­ferli í náinni fram­tíð.

Slagur er þegar haf­inn um Arion banka, þrátt fyrir að Kaup­þing, eig­andi 87 pró­sent hlutar í hon­um, hafi þrjú ár til að selja hann. Ríkið á 13 pró­sent hlut í þeim banka. 

Óljóst hver myndi selja bank­ana

Ekki hefur legið alveg fyrir hver myndi fara með sölu bank­anna. Í apríl var lagt fram frum­varp sem gekk út á að færa verk­efni Banka­sýslu rík­is­ins til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is. Ráð­herra þess átti í kjöl­farið að setja sérstaka eig­enda­stefnu rík­is­ins sem tekur til þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem ríkið á eign­ar­hluti í, skipa þriggja manna ráð­gjafa­nefnd, án til­nefn­ing­ar, til að veita honum ráð­gjöf um með­ferð eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og und­ir­búa sölu og sölu­með­ferð þeirra hluta. Lögin áttu, sam­kvæmt frum­varpi, að taka gildi í byrjun næsta árs.

Í fjár­laga­frum­varpi 2016 átti banka­sýslan ekki að fá krónu. Eitt­hvað mikið hefur hins vegar breyst í milli­tíð­inni því sam­kvæmt nýbirtum breyt­ing­ar­til­lögum við fjár­laga­frum­varp næsta árs fær hún þrefalt hærri upp­hæð en á fjár­lögum árs­ins 2015 og á að setja sig í stell­ingar til að taka á móti Íslands­banka, þegar kröfu­hafar föllnu bank­anna afhenda rík­inu hann. 

Því stefnir allt í að hlutur rík­is­ins í bönk­unum verði seldur í gegnum Banka­sýslu rík­is­ins.

Sporin hræða

Nýtt einka­væð­ing­ar­ferli banka er því sann­ar­lega í bígerð. Síð­ast þegar ríkið réðst í slíka einka­væð­ing­ar­að­gerð, á árunum 2002 og 2003, gekk það ekki betur en svo að bank­arnir sem það seldi uxu á örfáum árum upp í að verða marg­falt stærri en þjóð­ar­fram­leiðsla Íslend­inga og hrundu svo eins og spila­borg á örfáum dögum haustið 2008 með afdrifa­miklum afleið­ingum fyrir íslenska þjóð. 

Sú einka­væð­ing hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir spill­ingu, ógegn­sæi og ófag­leg­heit, enda reynsla þeirra sem fengu að kaupa bank­ana þá af fjár­mála­starf­semi lítil sem eng­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None