Búið að reka Steingrím Erlingsson frá Fáfni Offshore

Polarsyssel
Auglýsing

Stjórn Fáfnis Offs­hore hefur sagt Stein­grími Erlings­syni, for­stjóra og stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins, upp störf­um. Þetta gerð­ist í vik­unni. Bjarni Ármanns­son, stjórn­ar­for­maður Fáfnis Offs­hore, stað­festir þetta við Frétta­blaðið en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um ástæðu upp­sagn­ar­inn­ar. Heim­ildir Kjarn­ans herma að miklir sam­starfs­erf­ið­leikar hafi verið milli stjórnar Fáfnis Offs­hore og Stein­gríms und­an­far­ið.

Fáfnir Offs­hore sér­hæfir sig í þjón­ustu við olíu- og gas­bor­p­alla auk ann­arra verk­efna á norð­lægum slóð­um.  Stein­grím­ur, sem á enn 21 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu, stofn­aði það árið 2012.

Kjarn­inn greindi frá því í byrjun des­em­ber að afhend­ing á Fáfni Vik­ing, skipi í eigu Fáfnis Offs­hore, hafi verið frestað í annað sinn. Skipið átti að afhend­ast í mars á næsta ári en sam­kvæmt nýju sam­komu­lagi milli Fáfnis og norsku skipa­smíða­stöðv­ar­innar Hay­vard Ship Technologies AS, sem skrifað var undir í byrjun þessa mán­að­ar, mun afhend­ing þess frest­ast fram til júní­mán­aðar 2017. Á meðal þeirra sem hafa fjár­fest háum fjár­hæðum í Fáfni Offs­hore eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir.

Auglýsing

Fáfnir Offs­hore á einnig skipið Pol­ar­sys­sel, sem var kost­aði yfir fimm millj­arða króna og er dýrasta skip Íslands­sög­unn­ar. Það skip var afhent haustið 2014 og er með þjón­ustu­samn­ing við sýslu­emb­ættið á Sval­barða um birgða­flutn­inga og örygg­is­eft­ir­lit. Upp­haf­lega gekk sá samn­ingur út á að sýslu­manns­emb­ættið hefði skipið til umráða að lág­marki í 180 daga á ári, eða sex mán­uði. Hina sex mán­uði árs­ins stóð til að nota skipið í verk­efni tengdum olíu- og gas­iðn­að­inum í Norð­ur­sjó. Þau verk­efni hafa hins vegar horfið und­an­farið ár, sam­hliða hinni miklu lækkum á heims­mark­aðs­verði á olíu.

Í októ­ber síð­ast­liðnum var því gerður nýr samn­ingur við sýslu­manns­emb­ættið á Sval­barða. Hann tryggir Pol­ar­sys­sel verk­efni í níu mán­uði á ári. Þessi samn­ingur er eina verk­efni Fáfnis Offs­hore sem stend­ur.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga mikið undir

Í nóv­em­ber 2014 var Stein­grímur við­mæl­andi á fræðslu­fundi VÍB, sem er hluti af Íslands­banka. Þar sagði hann meðal ann­ars að Fáfnir Offs­hore stefndi að því að vera með 3-4 skip í rekstri á næstu árum. 

Skömmu eftir að VÍB tók við­tal við Stein­grím, nánar til­tekið í des­em­ber 2014, var til­kynnt að Akur fjár­fest­ingar, fram­taks­sjóður í rekstri Íslands­sjóða, sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Íslands­banka, hefði keypt 30 pró­sent hlut í Fáfni Offs­hore fyrir 1.260 millj­ónir króna. Helstu eig­endur sjóðs­ins eru líf­eyr­is­sjóð­ir, Íslands­banki og VÍS.

Áður höfðu ýmsir fjár­festar komið að félag­inu, meðal ann­ars stjórn­ar­for­mað­ur­inn Bjarni Ármans­son, fyrrum banka­stjóri Glitn­is, í gegnum fjár­fest­inga­fé­lag sitt Sjáv­ar­sýn. Þá á félag tengt Havy­ard ship skipa­smíða­verk­smiðj­unni, sem smíðar bæði skip Fáfnis Offs­hore, hlut í félag­inu. Það á Horn II, fram­taks­sjóður í rekstri Lands­bréfa, sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Lands­bank­ans, líka. Helstu fjár­fest­arnir í Horni II eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Horn II á í dag 23,1 pró­sent hlut í Fáfni Offs­hore.

Tugum skipa hefur verið lagt

Þjón­ust­mark­aður fyrir olíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó hefur hrunið und­an­farið rúmt ár. Tugum skipa sem gerðu út á þennan mark­að, sem alþjóð­lega nefn­ist „Offs­hor­e“-­mark­að­ur­inn, hefur verið lagt vegna þess að það eru ekki verk­efni til staðar fyrir þau og oliu­borpöllum í Norð­ur­sjó hefur fækkað mik­ið. Ástæðan er sú að olíu­verð hefur lækkað svo mik­ið- það hefur lækkað úr 116 dölum í 40 dali á einu og hálfu ári – að það svarar ekki kostn­aði að vinna olí­una úr þeim lindum sem þar er að finna.

Offs­hor­e-­borpöllum í Norð­ur­-Am­er­íku hefur einnig fækkað skarpt á þessu tíma­bili. Frá nóv­em­ber 2014 og til loka sama mán­aðar í ár fækk­aði þeim úr 54 í 30. 

Fáfnir Offs­hore tap­aði 3,4 millj­ónum norskra króna á síð­asta ári, eða um 52 millj­ónum íslenskra króna á gengi dags­ins í dag. Velta félags­ins í fyrra var 33,2 millj­ónir norskra króna, eða rúm­lega hálfur millj­arður íslenskra króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Fáfnis Offs­hore fyrir árið 2014.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None