Hagfræðistofnun staðfestir jákvæð áhrif kvikmyndagerðar fyrir hagkerfið

Gildistími núgildandi laga um endurgreiðslukerfi rennur út í lok árs 2016 og hefur verið ákveðið að framlengja lögin og betrumbæta. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra mun leggja fram frumvarp þess efnis á komandi vorþingi.

Ragnheiður Elín
Auglýsing

Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, lagði í dag fram á Alþingi skýrslu um hag­ræn áhrif kvik­mynda­gerðar á Íslandi með sér­stakri áherslu á svæð­is­bundin áhrif. Skýrslan var unnin af Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands og sýnir meðal ann­ars fram á að mark­mið end­ur­greiðslu­kerf­is­ins hafa náð­st, en þau eru t.d. að fram­leiðslan sé til þess fallin að koma íslenskri menn­ingu á fram­færi, kynna nátt­úru lands­ins of stuðla að auk­inni reynslu og þekk­ingu þeirra sem að fram­leiðsl­unni standa.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráðu­neyti Ragn­heiðar Elín­ar.

„Skýrslan sýnir að kvik­mynda­gerð á Íslandi hefur vaxið og dafn­að, umfang hennar hefur auk­ist hvort sem litið er til kostn­aðar eða virð­is­auka, þekk­ing hefur auk­ist og erlendum verk­efnum fjölgað mjög. Við það bæt­ist að íslenska end­ur­greiðslu­kerfið er til þess að gera ein­falt og gagn­sætt,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Virð­is­auki end­ur­greiðslu­verk­efna fyrir þjóð­fé­lagið í heild var tæpur millj­arður króna árið 2013, en það ár var lagt til grund­vallar við vinn­una þar sem það var síð­asta heila árið sem öll gögn lágu fyr­ir.

Tor­veld­ara reynd­ist að meta svæð­is­bundin áhrif kvik­mynda­gerðar á Íslandi en ljóst er að hin efna­hags­legu áhrif eru sterk­ust á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Það kemur aðal­lega til af því að flest fyr­ir­tæki, verk­takar og starfs­menn sem starfa í grein­inni eru skráð á því svæði. Tíma­bundin áhrif á hverju svæði eru þó tölu­verð og eru kvik­mynda­verk­efni eft­ir­sótt um allt land,“ segir í til­kynn­ingu frá iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir segir það „ánægju­legt að leggja þessa skýrslu fram á Alþingi á árinu 2015 þegar vel­gengni íslenskra kvik­mynda hefur náð nýjum hæð­um. Kvik­myndir eins og Hrútar, Fúsi, Hross í oss og Þrestir hafa hlotið marg­vís­leg verð­laun á erlendum vett­vangi. Þá fór hluti af eft­ir­vinnslu stór­mynd­ar­innar Baltasars Kor­máls, Ever­est, fram hér á landi og hefur sú vinna hlotið mikla athygli. Þar er eftir miklu að slægj­ast fyrir íslensk fyr­ir­tæki og mik­il­vægt að leita leiða til að draga að fleiri slík verk­efn­i.“

Ragn­heiður Elín segir skýrsl­una und­ir­strika að íslensk kvik­mynda­gerð er orðin alþjóð­lega sam­keppn­is­hæf. Þar hefur margt komið til og aug­ljóst að til­koma end­ur­greiðslu­kerf­is­ins á sínum tíma mark­aði þátta­skil. Það styður ekki ein­ungis við inn­lenda kvik­mynda­gerð heldur gerði Ísland að raun­veru­legum val­kosti fyrir erlenda kvik­mynda­fram­leið­end­ur, að því er skýrslan leiðir fram.

Gild­is­tími núgild­andi laga um end­ur­greiðslu­kerfi rennur út í lok árs 2016 og hefur verið ákveðið að fram­lengja lögin og betrumbæta. Iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra mun leggja fram frum­varp þess efnis á kom­andi vor­þingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None