Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard og Poor‘s tilkynnti í dag um hækkun á lánshæfiseinkunn fyrir langtímaskuldbindingar ríkissjóðs Íslands úr BBB í BBB+. S&P hefur einnig staðfest óbreytta einkunn til skamms tíma sem A-2. Þetta kemur fram á vef Seðlabanka Íslands.
Í fréttatilkynningu S&P kemur fram meðal annars að ákvörðun um hækkun lánshæfismatsins taki fyrst og fremst mið af árangri stjórnvalda frá því í júní 2015 við lausn vandamála sem staðið hafa í vegi fyrir losun fjármagnshafta. Þá gerir S&P ráð fyrir að skuldir ríkissjóðs og vaxtagreiðslur lækki á næstu fjórum árum, að því er segir í tilkynnu frá S&P.
Frekari hækkun á lánshæfismatinu er háð því að höft verði afnumin án þess að viðskiptajöfnuður eða fjármálastöðugleiki raskist. Einnig gæti lánshæfiseinkunnin hækkað ef tekst að selja eignir úr stöðugleikaframlagi hraðar en áætlað er og afraksturinn nýttur til að greiða niður skuldir ríkissjóðs.
Á hinn bóginn gæti lækkun orðið ef launahækkanir valda efnahagslegum óstöðugleika, losun hafta tefst eða veruleg lækkun gjaldeyrisforða leiðir til þrýstings á gengi krónunnar.