Meira en 2.000 hugmyndir í Gullegginu á níu árum

Skilafrestur hugmynda í stærstu frumkvöðlakeppni landsins rennur út 20. janúar. Fjölmörg farsæl fyrirtæki hafa orðið til í keppninni í þau níu skipti sem hún hefur verið haldin.

Vinnusmiðjur Gulleggsins hefjast í lok þessa mánaðar þegar umsóknarfresturinn í keppnina rennur út 20. öld.
Vinnusmiðjur Gulleggsins hefjast í lok þessa mánaðar þegar umsóknarfresturinn í keppnina rennur út 20. öld.
Auglýsing

Gul­legg­ið, stærsta frum­kvöðla­keppni lands­ins, er að fara af stað í níunda sinn á jafn mörgum árum. Hægt er að senda inn hug­myndir til 20. jan­úar næst­kom­andi en úr hópi umsókna verða tíu hug­myndir frum­kvöðla valdar sem verða kynntar fyrir fjár­festum auk þess sem sig­ur­veg­ar­inn í keppn­inni hlýtur Gul­legg­ið. Les­endur Kjarn­ans fá jafn­framt tæki­færi til að kjósa sína áhuga­verð­ustu hug­mynd hér á síð­unni.

Icelandic Startups (áður Klak Innovit) hefur umsjón með keppn­inni. Gul­legg­inu hefur borist um 2.000 hug­myndir frá því að keppnin hófst. Keppnin er opin öllum og hægt er að senda inn hvaða hug­mynd sem er. Stjórn Gul­leggs­ins hefur þess vegna valið umræðu­táknið #eng­ar­hindr­anir fyrir keppn­ina. Fróð­legt er að skoða tíst frá fyrr­ver­andi kepp­endum og öðrum sem fylgst hafa með keppn­inni.

Auglýsing

Vinnu­smiðjur hug­mynda­smið­anna hefj­ast eftir að umsókn­ar­frestur rennur út en í lok þeirra skila þátt­tak­endur inn við­skipta­á­ætl­un. Rýni­hópur mun svo velja tíu bestu hug­mynd­irn­ar. Teymin tíu fá þjálfun í fram­komu og kynna svo áætl­anir sínar fyrir fjár­festum á loka­degi Gul­leggs­ins 12. mars.

Fjöldi fyr­ir­tækja hefur náð fram­úr­skar­andi árangri eftir þátt­töku í Gul­legg­inu. Þar á meðal má nefna Meniga, Clara, Karol­ina Fund, Controlant, Pink Iceland, Radi­ent Games og CrowBar Prot­ein, svo fátt eitt sé nefnt. Svava Björk Ólafs­dótt­ir, verk­efna­stjóri hjá Icelandic Startups og umsjón­ar­maður Gul­leggs­ins, segir keppn­ina löngu orðna gæða­stimpil á við­skipta­hug­mynd­ir. „Gul­leggið stuðlar að sköpun nýrra starfa og verð­mæta fyrir Íslenskt sam­fé­lag. Það sann­ast sem helst með því að horfa til fyrri Gul­leggja sem náð hafa góðum árangri.“

Hægt er að fylgj­ast með íslensku nýsköp­un­ar­sen­unni á Watch­box í glugg­anum hér að neðan eða í Watch­box-app­inu. „Við höfum ákveðið að hvetja frum­kvöðla til að deila myndum og mynd­böndum á rásinni #iceland­icstartups á Watch­box,“ segir Svava. Einnig er hægt að fylgj­ast með mark­aðsteymi Gul­leggs­ins á nova-rásinni á Snapchat í dag.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None