Árni Páll ósammála frumvarpi flokksfélaga sinna um afnám verðtryggingar

Árni Páll Árnason
Auglýsing

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, seg­ist ekki vera sam­mála frum­varpi sem sam­flokks­menn hans, þau Sig­ríður Ingi­björg Inga­dóttir og Helgi Hjörvar, hafa lagt fram á Alþingi um afnám verð­trygg­ing­ar. Árni Páll seg­ist ekki telja rétt að banna verð­tryggð neyt­enda­lán. Ég tel rétt að fólk fái auk­ið val­frelsi og að við reynum að þróa lána­mark­að­inn þannig að hlut­fall óverð­tryggðra lána hækk­i." Þetta sagði Árni Páll í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morg­un.

Sig­ríður Ingi­björg Inga­dóttir og Helgi Hjörvar hafa lagt fram frum­varp um bann við verð­trygg­ingu á nýjum neyt­enda­lán­um, þar á meðal hús­næð­is­lán­um. Bannið á ekki að vera aft­ur­virkt og því ekki að ná til þeirra verð­tryggðu lána­samn­inga sem þegar hafa verið gerð­ir. 

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir marg­vís­leg efna­hags­leg rök og þörf á auk­inni neyt­enda­vernd kalli á afnám almennrar verð­trygg­ingar neyt­enda­lána. Þá hafi rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra sett „ákveðið for­dæmi fyrir því hvernig skuli bregð­ast við efna­hag­sveiflum í fram­tíð­inni“ með leið­rétt­ingu verð­tryggra hús­næð­is­lána vegna verð­bólgu­skots upp á 80 millj­arða króna.

Auglýsing

Á síð­asta lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem fram fór í mars 2015, bauð Sig­ríður Ingi­björg sig fram til for­manns gegn sitj­andi for­manni, Árna Páli. Þar sem fram­boðið barst skömmu ­fyrir lands­fund gátu ein­ungis lands­full­trúar kosið í for­manns­kosn­ing­unum í stað þess að alls­herj­ar­at­kvæða­greiðsla færi fram sem allir flokks­menn gætu tekið þátt í. Nið­ur­staðan varð sú að Árni Páll sigr­aði með einu atkvæði, hlaut 241 atkvæði en Sig­ríður Ingi­björg 240.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None