Hreiðar Már, Sigurður og Magnús sýknaðir í í CLN-máli Kaupþings

hreidar.jpg
Auglýsing

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings, Sig­urður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, voru í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun sýkn­aðir í svoköll­uðu CLN-­máli. RÚV greinir frá.

Í mál­inu voru Hreiðar Már og Sig­urður ákærðir fyrir fyrir stór­felld umboðs­svik með því að lánað fjórum eign­ar­halds­fé­lögum 260 millj­ónir evra. Félögin fjögur lán­uðu féð áfram til tveggja ann­arra félaga sem not­uðu það til að kaupa láns­hæf­istengd skulda­bréf (Credit Lin­ked Not­es, eða CLN) sem tengd voru skulda­trygg­ing­ar­á­lagi Kaup­þings. Þegar þýski bank­inn Deutsche Bank hóf veð­köll vegna máls­ins fengu síð­ari félögin tvö 260 millj­ónir evra til við­bótar lán­uð. Sam­tals nemur láns­upp­hæðin 510 millj­ónum evra, eða um 72 millj­örðum króna á gengi dags­ins í dag. Í ákæru sér­staks sak­sókn­ara kemur fram að talið sé að útlánin séu að öllu leyti töp­uð.  Þar segir einnig að menn­irnir tveir hafi valdið Kaup­þingi „stór­felldu tjóni“ með hátt­semi sinni.

Magnús var einnig ákærður í mál­inu fyrir hlut­deild í umboðs­svik­um.

Auglýsing

Allir afplána dóma vegna ann­arra mála

Allir sak­born­ing­arnir þrír, sem sýkn­aðir voru í morg­un, afplána sem stendur dóma á Kvía­bryggju. Þeir hlutu allir dóma í Hæsta­rétti í Al Than­i-­mál­inu í febr­úar 2015. Þar var Hreiðar Már dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi, Sig­urður í fjög­urra ára fang­elsi og Magnús í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi. Ólafur Ólafs­son, sem var stór eig­andi í Kaup­þingi fyrir hrun, hlaut einnig fjög­urra ára fang­elsi. Voru fjór­menn­ing­arnir dæmd­ir ­fyrir mark­aðs­mis­notkun á grund­velli laga um verð­bréfa­við­skipti og umboðs­svik sam­kvæmt hegn­ing­ar­lög­um. Hæsti­réttur kall­aði brot mann­anna alvar­leg­ustu efna­hags­brot sem „nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot[…]Á­kærð­u[...]eiga sér engar máls­bæt­ur“.

Hreiðar Már, Sig­urður og Magnús voru einnig allir ákærðir í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­máli Kaup­þings sem hér­aðs­dómur dæmdi í árið 2015. Þar var Hreiðar Már dæmdur sekur en hlaut ekki við­bót­ar­refs­ingu. Sig­urður var einnig dæmdur sekur og einu ári var bætt við afplánun hans. Tveimur ákæru­liðum gegn Magn­úsi var hins vegar vísað frá og hann sýkn­aður í mál­inu að öðru leyti. Nið­ur­stöð­unni hefur verið áfrýjað til Hæsta­rétt­ar.

Þá voru bæði Hreiðar Már og Magnús dæmdir sekir í hér­aðs­dómi í októ­ber 2015 í svoköll­uðu Marp­le-­máli. Hreiðar Már hlaut þá sex mán­aða auka­refs­ingu en Magnús var dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi. Skúli Þor­valds­son var einnig dæmdur til sex mán­aða fang­els­is­vistar en Guðný Arna Sveins­dótt­ir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, var sýknuð af ákæru í mál­inu. Hreiðar Már og Guðný Arna voru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús var ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli var ákærður fyrir hylm­ingu.

Auk þess eru fleiri mál á hendur mönn­unum enn í rann­sókn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None