Landsbankinn sendi í dag samantekt vegna sölu á 31,2 prósent hlut bankans í greiðslukortafyrirtækinu Borgun til Alþingis. Í samantektinni er að finna upplýsingar um söluferlið og þau álitamál sem tengjast því. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum sem send var út í dag. Bankinn hafnar þar ásökunum um að bankaráð eða starfsmenn Landsbankans hafi unnið að sölu á hlut bankans í Borgun að óheilindum og segist ekkert hafa að fela í málinu.
Þar segir einnig að Landsbankinn hafi afhent Fjármálaeftirlitinu öll umbeðin gögn um söluna á hlut bankans í Borgun í desember 2014 og að í sama mánuði hafi stjórnendur bankans farið á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis til að fjalla um málið og svara spurningum nefndarmanna. Í tilkynningunni kemur fram að bankaráð Landsbankans hafi fylgst með söluferli Borgunar frá upphafi og ítrekað fjallað um það á fundum sínum. Bankaráðið hafi í umfjöllun og ákvörðunum sínum um málið „ávallt haft hagsmuni bankans og eigenda hans að leiðarljósi. Bankinn dró lærdóm af gagnrýni á söluferli Borgunar og breytti árið 2015 stefnu sinni um sölu eigna. Stefna sem áður gilti eingöngu um sölu á fullnustueignum gildir nú einnig um sölu á öðrum eignum bankans. Bankaráð hafnar ásökunum um að bankaráð eða starfsmenn Landsbankans hafi unnið að sölu hlutar bankans í Borgun af óheilindum. Landsbankinn hefur birt ítarlegar upplýsingar um söluferlið enda hefur bankinn ekkert að fela."
Hópur fólks mótmælti sölu Landsbankans í Borgun í höfuðstöðvum hans í Austurstræti í dag. Mótmælendur afhentu Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans, meðal annars bréf þar sem farið var fram á afsögn hans. Steinþór ræddi við mótmælendur á meðan að á aðgerðinni stóð, líkt og sjá má í myndandi sem fjölmiðillinn Reykjavik Grapevine birti á Youtube fyrr í dag.