Lægri endurgreiðsla
virðisaukaskatts hefur aukið líkur a skattaundanskotum í byggingaiðnaði, að
mati Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisskattstjóra. Alls hefur beiðnum um
endurgreiðslur fækkað um 60 prósent á sama tíma og umsvif í byggingaiðnaði hafa
aukist. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Þar segir að í ársbyrjun 2015 hafi endurgreiðsla virðisaukaskatts til eigenda íbúðarhúsnæðis lækkað vegna vinnu iðnaðarmanna á húsnæði þeirra úr 100 prósentum í 60 prósent. Endurgreiðslurnar höfðu þá verið 100 prósent frá árinu 2009 í tengslum við hið svokallaða „Allir vinna“ átak. Frá því að endurgreiðslurnar voru lækkaðar hefur beiðnum um endurgreiðslur fækkað mikið, eða um 60 prósent. Það gerist á sama tíma og umsvif í byggingaiðnaði hafa stóraukist. Því bendir allt til þess að svört vinna sé í mikilli uppsveiflu.
Þannig sleppur kaupandi að vinnu við að greiða 40 prósent af virðisaukaskattinum og seljandi geti þá sömuleiðis sleppt því að gefa vinnuna upp til tekjuskatts. Þannig verði hið opinbera af umtalsverður tekjum. Á meðan að endurgreiðslur voru 100 prósent var hins vegar engin fjárhagslegur hvati hjá kaupanda að svíkjast undan því að borga virðisaukaskatt og hann því líklegri til að gefa verkið upp.
Skúli Eggert veltir því fyrir sér við Fréttablaðið hvort ekki sé rétt að hefja fulla endurgreiðslur á virðisaukaskattinum að nýju. Þar tekur hann undir með Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, sem sagði á Alþingi á mánudag að mikilvægt væri að hafa reglum þannig að ekki væri hvati til að stinga undan satti. Í því samhengi nefndi hann sérstaklega ofangreindar breytingar á endurgreiðslum til eigenda íbúðahúsnæðis.