36,5 milljarða hagnaður Landsbankans - 28,5 milljarðar í arð til ríkisins

Steinþór Pálsson
Auglýsing

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 36,5 millj­arða króna árið 2015. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Lands­bank­ans þar sem gert er grein fyrir upp­gjöri síð­asta árs. Arð­semi eig­in­fjár var 14,8 pró­sent á árinu 2015, sam­an­borið við 12,5 pró­sent árið áður. 



Tekjur bank­ans vegna virð­is­breyt­inga á útlánum námu 13,5 millj­örðum króna. Eigið fé bank­ans nemur nú um 264,5 millj­örðum króna. Það er svipað eigið fé og er nú hjá Lands­virkj­un, en íslenska ríkið er eig­andi beggja þess­ara fyr­ir­tækja. 

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans er nú ríf­lega 30 pró­sent.

Lagt verður til við aðal­fund Lands­bank­ans að 28,5 millj­arðar króna verði greiddir í arð til hlut­hafa, en eins og áður segir er íslenska ríkið eig­andi nær alls hluta­fjár, eða 98 pró­sent

Auglýsing

Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir rekstur bank­ans hafa gengið vel í fyrra. Hann segir enn fremur að við­búið sé að hagn­aður muni lækka nokkuð á næst­unni þar sem óvenju­legir lið­ir, svo sem virð­is­aukn­ing útlána, muni minnka veru­lega.

„Lands­bank­anum gekk vel á árinu 2015 og það var góður gangur á nán­ast öllum svið­um. Tekjur bank­ans juk­ust tölu­vert frá fyrra ári og um leið lækk­uðu rekstr­ar­gjöld. Dregið hefur úr óvissu og áhættu hjá bank­an­um. Gæði eigna hafa auk­ist og fjár­mögnun bank­ans hefur styrkst með betra aðgengi að inn­lendum og erlendum lána­mörk­uð­um. Lausa­fjár­staðan er sterk auk þess sem eig­in­fjár­staða bank­ans er hlut­falls­lega með því hæsta sem þekkist, þrátt fyrir háar arð­greiðsl­ur. Sam­þætt­ing Spari­sjóðs Vest­manna­eyja og Spari­sjóðs Norð­ur­lands við bank­ann gekk vel og styrkir Lands­bank­ann enn frekar á lands­byggð­inn­i,“ segir Stein­þór í til­kynn­ing­unni.

Útlán juk­ust um 93 millj­arða króna en aukn­ingin er að stærstum hluta vegna auk­inna íbúð­ar­lána til ein­stak­linga ásamt auknum lán­veit­ingum til fyr­ir­tækja.

Þá hafa allir end­ur­reistu bank­arnir skilað upp­gjörum fyrir síð­asta ár. Arion banki hagn­að­ist um 49,7 millj­arða, Íslands­banki um rúm­lega 20 millj­arða og Lands­bank­inn um 36,5 millj­arða, eins og áður seg­ir. Sam­an­lagður hagn­aður end­ur­reistu bank­anna þriggja nam því rúm­lega 106 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None