Tveir og hálfur milljarður í bankabónusa á þremur árum

Íslandsbanki og Arion banki hafa gjaldfært rúmlega 2,4 milljarða króna vegna kaupauka starfsmanna á þremur árum. Landsbankinn er ekki með kaupaukakerfi en starfsmönnum hans var gefin hlutur í bankanum og þeir fá greiddan arð vegna hans.

Höskuldur og Birna
Auglýsing

Sam­an­lagðar bón­us­greiðslur sem Arion banki og Ís­lands­banki skuld­bundu sig til að greiða vegna kaupauka­kerfa sinna í fyrra ­nema 977 millj­ónum króna. Bank­arnir tveir hafa sam­an­lagt gjald­fært tæpan tvo og hálfan millj­arð króna vegna bón­us­greiðslna á þremur árum.

Arion banki ætlar að greiða 599 millj­ónir króna ­vegna árs­ins 2015 í kaupauka­greiðslur handa rúm­lega hund­rað starfs­mönn­um ­bank­ans og dótt­ur­fé­laga hans sem eiga rétt á slík­um. Þar af fær Hösk­uldur H. Ólafs­son banka­stjóri 7,2 millj­ónir króna í bónus ofan á 56 millj­óna króna árs­laun sínu og níu fram­kvæmda­stjórar skipta á milli sín 26,4 millj­ónum króna í ár­ang­urstengdum greiðsl­um.

Íslands­banki gjald­færði 378 millj­ónir króna vegna ­kaupauka­greiðslna á árinu 2015 til val­inna starfs­manna bank­ans og dótt­ur­fé­laga hans. Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri fær 7,2 mill­ljónir króna ofan á 44 millj­óna króna árslan sín og átta fram­kvæmda­stjórum Íslands­banka var lofað 29 milj­ónum króna. Þess má geta að Íslands­banki er nú að öllu leyti í eig­u ­rík­is­ins. Frá þessu er greint í DV.

Auglýsing

Vert er að taka fram að í sam­ræmi við ­regl­ur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins er greiðslu á að minnsta kosti 40 pró­sent ­kaupauka frestað um þrjú ár.

Greiddu tæp­lega 1,5 millj­arð árin 2013 og 2014

Íslands­banki og Arion ­banki gjald­færðu sam­tals um 835 millj­ónir króna vegna kaupauka­greiðslna til­ ­starfs­manna sinna á árinu 2014. Arion banki gjald­færði 477 millj­ónir króna það ár sem var 25 millj­ónum króna meira en árið á und­an. Íslands­banki gjald­færð­i 258 millj­ónir króna árið 2014, eða 17 millj­ónum krónum meira en árið 2013. Sam­tals höfðu bank­arnir tveir því gjald­fært 1.428 millj­ónir króna í bónusa vegna áranna 2013 og 2014. Við bæt­ast nú 977 millj­ónir króna vegna árs­ins 2015.

Lands­bank­inn, sem er að mestu í eig­u ­rík­is­ins, er ekki með árang­urstengdar greiðsl­ur. Um 1.400 núver­andi og ­fyrr­ver­andi starfs­menn bank­ans fengu hins vegar hlut í bank­anum gef­ins árið 2013 og fá greiddan arð vegna hans. Gjörn­ing­ur­inn var liður í sam­komu­lagi frá­ ár­inu 2009, um fjár­hags­upp­gjör milli gamla og nýja Lands­bank­ans. Skatta­leg­t verð­mæti hluta­bréf­anna nam 4,7 millj­örðum króna þegar hann var afhent­ur.

Reynt að hækka bón­us­heim­ild­ina í lögum

Reynt var að auka heim­ild fjár­mála­fyr­ir­tækja þannig að þau gætu greitt hærri bónusa í frum­varpi um breyt­ingar á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki sem var til umræðu á þingi í fyrra. Þar var meðal ann­ars lag­t til að tvö­falda bón­us­greiðslur starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja þannig að þær ­mættu vera allt að 50 pró­sent af föstum árs­launum starfs­manns, en þær mega nú vera 25 pró­sent af árs­launum hans. Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi frá­ ­sér minn­is­blað til efna­hags- og við­skipta­nefndar þegar málið var þar til vinnslu ­sem í stóð að það teldi að það yrði að „skað­lausu“ að veita fjár­mála­fyr­ir­tækj­u­m heim­ild til að greiða tvö­falt hærri bón­us­greiðslur en núver­andi reglur kveða. Þá ­mætti einnig skoða að smærri fjár­mála­fyr­ir­tækjum yrði leyft að greiða hlut­falls­lega enn hærri kaupauka til starfs­manna, til dæmis 100 pró­sent af árs­laun­um, heldur en stóru við­skipta­bönk­un­um.  

Breyt­ingin á kaupauka­kerfum bank­anna var á end­anum felld út eftir miklar umræður á þingi og í sam­fé­lag­inu og laga­breyt­ingin afgreidd án henn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None