Segir að samningur Fáfnis við Svalbarða verði lengdur

Polarsyssel
Auglýsing

Búið er að ná sam­komu­lagi um að lengja þjón­ustu­samn­ing Fáfnis Offs­hore við ­sýslu­manns­emb­ættið á Sval­barða úr sex mán­uðum á ári í níu. Gengið verður frá­ ­skrif­legum samn­ingi á næstu dög­um. Eina starf­andi skip Fáfn­is, Pol­ar­sys­sel, sinnir því verk­efni sem er það eina sem skipið hefur og þar af leið­andi gíf­ur­lega mik­il­vægt fyrir Fáfni. Pol­ar­sys­sel er dýrasta ­skip Íslands­sög­unnar og kost­aði um fimm millj­arða króna. Þetta segir Jóhannes Hauks­son, ­stjórn­ar­for­maður Fáfnis og starfs­maður Íslands­sjóða við Frétta­blaðið í dag. 

Á hlut­hafa­fundi sem hald­inn var í Fáfni á mið­viku­dag var til­laga um að Fáfn­ir ­gefi út skulda­bréf til að standa við afborg­anir af greiðslum vegna smíði á seinni skipi fyr­ir­tæk­is­ins, Fáfnis Vik­ing. Öllum hlut­höfum býðst að taka þátt í út­gáf­unni, sem mun bera 20 pró­sent vexti, en eign­ar­hlutur þeirra sem það ger­a ekki munu þynn­ast út.

Líf­eyr­is­sjóðir í millj­arða­fjár­fest­ingu

Auglýsing

Í des­em­ber 2014 keypti Akur fjár­fest­ingar, fram­taks­sjóður í rekstri Íslands­sjóða, sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is Ís­lands­banka, 30 pró­sent hlut í Fáfni Offs­hore fyrir 1.260 millj­ónir króna. Helstu eig­endur sjóðs­ins eru þrettán líf­eyr­is­sjóð­ir, Íslands­banki og VÍS. Líf­eyr­is­sjóð­ur­ versl­un­ar­manna er stærsti eig­andi Akurs með 19,9 pró­senta hlut. Þar á eft­ir kemur Gildi – líf­eyr­is­sjóður með 15 pró­sent. Íslands­banki á 14 pró­senta hlut en aðrir hlut­hafar tíu pró­sent eða minna. 

Áður höfðu ýmsir fjár­festar komið að félag­inu, meðal ann­ar­s ­stjórn­ar­for­mað­ur­inn Bjarni Ármans­son, fyrrum banka­stjóri Glitn­is, í gegn­um fjár­fest­inga­fé­lag sitt Sjáv­ar­sýn. Þá á félag tengt Havy­ard ship ­skipa­smíða­verk­smiðj­unni, sem smíðar bæði skip Fáfnis Offs­hore, hlut í félag­in­u. Það á Horn II, fram­taks­sjóður í rekstri Lands­bréfa, sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Lands­bank­ans, lík­a, en sjóð­ur­inn á 23,1 pró­sent hlut í Fáfni Offs­hore.Auk þess á Stein­grím­ur Erl­ings­son, stofn­andi og fyrrum for­stjóri Fáfn­is, enn 21 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu.

Fáfnir Offs­hore glímir við mik­inn vanda vegna þess að ­mark­að­ur­inn sem fyr­ir­tækið starfar á, þjón­usta við olíu­leit, hefur hrunið sam­hliða ­miklum verð­lækk­unum á heims­mark­aðs­verði á olíu. Fyrir liggur að virði fyr­ir­tæk­is­ins hefur hríð­lækkað í virði á und­an­förnum miss­er­um.

Segir Fáfni ekki hafa kom­ist áfram í útboð­inu

Í Frétta­blað­inu í dag er einnig greint frá því  að danska fyr­ir­tæk­ið ­Sky Wind Energy hafi lýst yfir áhuga á að greiða þá afborgun sem Fáfnir ætl­ar nú að gefa út skulda­bréf til að standa und­ir. Um er að ræða jafn­virði 180 millj­óna króna. Í blað­inu er greint frá því að Sky Wind Energy hafi vilj­að ­leggja fram nýtt hlutafé svo breyta mætti Fáfni Vik­ing í þjón­ustu­skip fyr­ir­ vind­myll­ur.

Jóhannes segir að til­boði Sky Wind Energy afi verið hagn­að, ásamt ýmsum öðrum til­boðum sem lögð voru fram til stjórn­enda ­Fáfn­is. Hann segir „margar ástæður fyrir því“. Stein­grímur Erlings­son sagði frá­ því í Kast­ljósi í vik­unni að hann hefði viljað breyta Fáfni Vík­ing í skip sem ætti að þjón­usta vind­myllur á hafi úti. Í kjöl­farið hafi Fáfnir orð­ið þátt­tak­andi í útboði Siem­ens þar sem hug­myndin var að leigja skipið í þjón­ust­u við vind­myllu­iðn­að­inn til 15 ára. Stein­grímur hafi séð um þau sam­skipti en honum var sagt upp störfum um miðjan des­em­ber í fyrra. Jóhannes segir að Fáfn­i hafi borist þær upp­lýs­ingar nýverið að fyr­ir­tækið hafi ekki kom­ist áfram í næstu umferð í útboð­inu. Þó hafi nú verið ákveð­ið, á hlut­hafa­fund­inum í vik­unni, að færa Fáfni Vík­ing í sér­stakt félag, enda væru þeir fjár­munir sem farið hafi í bygg­ingu þess skips í hættu. Nú sé verið að skoða hvort hægt verð­i að breyta skip­inu í þjón­ustu­skip fyrir vind­myllur á sjó.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None