Mjólkursamsalan tapaði 330 milljónum í fyrra

skyr
Auglýsing

Mjólk­ur­sam­salan tap­aði 330 millj­ónum króna á árið 2015. Tapið er til­komið vegna þess að fram­leiðsla umfram mark­aðs­þarfir inn­an­lands var sjö til átta milljón lítr­ar. Þ.e. fram­leið­end­urn­ir, bænd­ur, fram­leiddu meiri mjólk en nauð­syn­legt var og Mjólk­ur­sam­salan þurfti að kaupa hana af þeim. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag. 

Erlend starf­semi Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar, sem felst að mestu í hagn­aði af einka­leyfum og fram­leiðslu á skyri erlend­is, var 400 millj­ónir króna.

Raunar er sala á íslensku skyri í Bret­landi, fram­leiddu af Mjólk­ur­sam­söl­unni, þegar orðin þrefalt meiri en kaup­endur vör­unnar reikn­uðu með fyr­ir­fram. Í febr­úar hófst sala á íslensku skyri í um 200 versl­unum Waitros­e-versl­ana­keðj­unar þar í landi og reikn­uðu stjórn­endur keðj­unar með að selja um 4.000 dósir á viku. Nið­ur­staðan hefur hins vegar verið um 12.000 dósir á viku. Salan á skyri hefur einnig vaxið mikið á öðrum erlendum mörk­uð­um, sér­stak­lega í Finn­landi og Sviss.

Auglýsing

Í Morg­un­blað­inu er haft eftir Agli Sig­urðs­son, stjórn­ar­for­manni Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar, að mark­aðs­starf mjólk­ur­ris­ans Arla á skyri á Bret­lands­mark­aði hafi hjálpað mjög til, en að íslenska skyrið sé ein­fald­lega miklu betra. Vís­bend­ingar séu um að erlend starf­semi Mjólk­ur­sam­söl­unnar skili enn meiri hagn­aði á næsta ári.

Ekki skrá­sett vöru­merki í Bret­landi

Sænski mjólk­ur­ris­inn Arla hefur mark­aðs­sett eigin fram­leiðslu á skyri víða í Evr­ópu und­an­fatið ár. Í þeirri her­ferð hefur verið lögð mikil áhersla á að sýna fram á íslenskan upp­runa skyrs­ins og aug­lýs­ing­arnar hafa inni­haldið mikið magn myndefnis frá Íslandi.

Skyr er skrá­sett vöru­merki í Finn­landi og Nor­egi í eigu MS og sam­starfs­að­ila henn­ar. Í októ­ber var greint frá því að.­Mjólk­ur­sam­salan hefði fengið úrskurðað lög­bann á sölu Arla á skyri í Finn­landi. Arla varð að fjar­lægja allt skyr úr versl­unum þar í landi. Skyr Arla er fram­leitt í Þýska­land­i.Auk þess var lögð á 500 þús­und evra sekt á félag­ið.



Skyr er einnig skráð vöru­merki Mjólk­ur­sam­söl­unnar í Nor­egi en ekki fleiri löndum Evr­ópu. Skyr frá Arla var því áfram fáan­legt í Bret­landi, Hollandi, Belgíu og Dan­mörku, án þess að MS geti óskað eftir lög­banni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None