Rætt um að leggja fram vantrausttillögu á forsætisráðherra

Sigmundur og stjórnarandstaðan
Auglýsing

Ein­staka þing­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafa rætt um að leggja fram van­traust­til­lögu á Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra vegna upp­lýs­inga sem fram komu í síð­ustu viku. Þá var greint frá því að Anna Sig­ur­laug Páls­dótt­ir, eig­in­kona Sig­mundar Dav­íðs, ætti aflands­fé­lag skráð á Tortóla-eyju og geymdi þar eignir upp á um 1,2 millj­arð króna. Sömu­leiðis var greint frá því að hún hefði átt kröfur í bú allra stóru föllnu bank­anna upp á sam­tals 523 millj­ónir króna. Miðað við væntar end­ur­heimtir kröfu­hafa er lík­legt að félag Önnu Sig­ur­laugar fái yfir 120 millj­ónir króna vegna krafna sinna.

Það hefur verið harð­lega gagn­rýnt að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki greint frá til­urð félags­ins fyrr en nú, en það gerð­ist í kjöl­far þess að Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, for­svars­maður Reykja­vík Media ehf., hafði sam­band við Sig­mund Dav­íð. Jóhannes Kr. og alþjóð­legu rann­sókn­ar­blaða­mennsku­sam­stökin ICI­J, þýska dag­blaðið Südd­eutsche Zeit­ung og fleiri erlendir fjöl­miðlar hafa unnið saman að fréttaum­fjöllun um eignir Íslend­inga í erlendum skatta­skjólum und­an­farna mán­uði. Umfjöllun þeirra verður birt á næstu vik­um. 

Í Frétta­blað­inu í dag segir Ótt­arr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, að van­traust­til­lögu hafi verið velt upp í sam­ræð­um. Staðan sé „ein­hvern veg­inn alveg for­dæma­laus" og það komi vel til greina að leggja fram van­traust­til­lög­u. Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, tekur  sama undir með Óttarri. „Það hefur ekk­ert verið rætt form­lega innan þing­flokks VG en þetta hefur verið til umræðu hjá ein­staka þing­mönn­um.“ Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir að hann hafi heyrt af vanga­veltum um van­traust­til­lögu en að hún hafi ekki verið rædd innan þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.

Auglýsing

Í fréttum RÚV í gær var greint frá því að van­traust­til­laga á for­sæt­is­ráð­herra hefði verið rædd innan allra stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sagði við RÚV að óhugs­andi væri að Sig­mundur Davíð sæti áfram sem for­sæt­is­ráð­herra í ljósi þeirra upp­lýs­inga sem komið hefðu fram. 

Stjórn­ar­þing­menn hafa einnig gagn­rýnt for­sæt­is­ráð­herra harð­lega. Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, gerði að í Viku­lok­unum á Rás 1 á laug­ar­dag og Ásmundur Frið­riks­son, sam­flokks­maður hans, sagði í fréttum RÚV í gær að hann vildi að Sig­mundur Davíð myndi stíga fram og skýra mál sitt sem fyrst. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hafði áður sagt að hann hafi ekki vitað af því að eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra ætti félag skrá á Tortóla-eyju sem ætti háar kröfur í slitabú föllnu bank­anna. Heim­ildir Kjarn­ans herma að mikil óánægja sé með þá stöðu sem er komin upp hjá mörgum öðrum þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None