Félag Vilhjálms í Panamaskjölunum – Fer úr stjórn Kjarnans

Vilhjálmur Þorsteinsson.
Vilhjálmur Þorsteinsson.
Auglýsing

Vil­hjálmur Þor­steins­son, fjár­fest­ir, fyrrum gjald­ker­i ­Sam­fylk­ing­ar­innar og hlut­hafi í Kjarn­anum átti félag sem skráð var til heim­il­is á Bresku Jóm­frú­areyj­un­um. Félag­ið, sem hét M-Tra­de, var stofnað árið 2001 en ­form­lega afskráð árið 2012. Það fjár­festi m.a. í afleiðu­við­skiptum og var í eigna­stýr­ingu hjá Kaup­þingi í Lúx­em­borg. Nafn félags­ins M-Trade kemur fyrir í skjölum sem lekið hefur verið frá panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fon­seca. ­Nafn Vil­hjálms sjálfs er þó ekki í skjöl­un­um. Vil­hjálmur átti einnig ann­að dótt­ur­fé­lag á árunum 2009 til 2011 sem skráð var til heim­ilis á Guerns­ey. Það ­fé­lag hafði sama til­gang og M-Trade hafði áður, að stunda önnur við­skipti en ­með hluta­bréf, skulda­bréf eða fast­eign­ir.

Vil­hjálmur upp­lýsti stjórn Kjarn­ans um þetta um liðna helgi þar ­sem framundan er umfjöllun Kast­ljós þar sem m.a. verður fjallað um félög tengd hon­um. Í ljósi þess­ara upp­lýs­inga hefur Vil­hjálmur vikið úr stjórn Kjarn­ans.

Sagði af sér sem gjald­keri Sam­fylk­ing­ar­innar

Í lok mars síð­ast­lið­ins, eftir að opin­berað hafði verið að eig­in­kona Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefð­i átt aflands­fé­lagið Wintris og verið kröfu­hafi í bú föllnu bank­anna var tölu­verð um­fjöllun í fjöl­miðlum um aðra þátt­tak­endur í stjórn­málum sem áttu eignir erlend­is. Einn þeirra var Vil­hjálm­ur, sem þá var gjald­keri Sam­fylk­ing­ar­inn­ar.

Vef­mið­ill­inn Eyjan birti frétt þann 30. mars þar sem því var haldið fram að nafn Vil­hjálms væri í gögnum ICIJ. Hann neit­aði því ­stað­fast­lega.

Auglýsing

Í pistli sem Vil­hjálmur birti dag­inn eft­ir, þann 31. mars, á blogg­svæði Eyj­unnar sagð­ist hann eiga félag í Lúx­em­borg, Meson Hold­ing, og að það félag ætti dótt­ur­fé­lag á Kýp­ur. Vil­hjálmur sagði starf­semi beggja félaga vera full­kom­lega lög­lega og að ætið hafi allir skattar og gjöld verið greidd­ir ­vegna þeirra. Þrátt fyrir þetta teldi hann að það mætti „aug­­ljóst vera að svona flókið eign­­ar­halds- og fjár­­­fest­inga­­dæmi hjá gjald­kera Sam­­fylk­ing­­ar­innar – jafn­­að­­ar­­manna­­flokks Íslands er lítt til þess fallið að fók­usera umræð­una sem nú stendur yfir um aflands­­fé­lög og skatta­­skjól á það sem máli skipt­ir: ­­rík­­is­­stjórn­­ina og stjórn­­­ar­­meiri­hlut­ann í land­inu. Ég hef því ákveðið að segja af mér emb­ætti gjald­kera Sam­­fylk­ing­­ar­innar, og styð stjórn­­­ar­and­­stöð­una ein­­dregið í því að kalla fram ábyrgð rík­­is­­stjórn­­­ar­­flokk­anna á sínu fólki.“

Fer úr stjórn Kjarn­ans

Vil­hjálmur minnt­ist ekki á félag­ið M-Trade í umræddum pistli. Það félag var stofnað í gegnum Mossack Fon­seca árið 2001 en var aflagt árið 2012. Þótt nafn Vil­hjálms sé ekki í þeim gögnum sem ­lekið hefur verið frá lög­manns­stof­unni þá er nafn M-Trade þar hins veg­ar. Vil­hjálmur segir að eftir fall Kaup­þings í októ­ber 2008 hafi Meson Hold­ing ­flutt allar sínar eignir úr eigna­stýr­ingu þar og þar með hafi félagið verið úr ­sög­unni hvað hann varð­ar. Í kjöl­farið hafi Meson Hold­ing leitað fyrir sér með­ ­banka­við­skipti og eigna­stýr­ingu á öðrum stöðum og árið 2009 hafi það haf­ið við­skipti við alþjóð­legan banka sem hafi stofnað dótt­ur­fé­lag fyrir Meson Hold­ing á Guerns­ey. Það félag, Jacinth, starf­aði til júní 2011. Síðan þá seg­ist Vil­hjálmur ekki hafa átt nein félög á aflands­svæð­um.

Vil­hjálmur segir að það hefði ver­ið ­skyn­sam­legra og hrein­skipt­ara af sér að hafa greint frá eign sinni á þessum ­fé­lögum þegar hann birti blogg­pistil á Eyj­unni í lok mars síð­ast­lið­inn.

Vil­hjálmur hefur verið hlut­hafi í Kjarn­an­um frá haust­mán­uðum 2014, á 15,98 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu, og hefur setið í stjórn þess. Hann á þann hlut í gegnum félag sitt Mið­eind ehf. og það félag er í eigu Meson Hold­ing A.S., sem skráð er í Lúx­em­­borg. Í ljósi upp­lýs­inga um aflands­fé­laga­eign Vil­hjálms hefur ver­ið á­kveðið að Vil­hjálmur víki úr stjórn og tók sú úrsögn gildi í dag.

Eig­endur Kjarn­ans eru:

  • HG80 ehf. (í eigu Hjálm­­ars Gísla­­son­­ar) 16,55%
  • Mið­eind ehf. (í eigu Vil­hjálms Þor­­steins­­son­­ar) 15,98%
  • Magnús Hall­­dór­s­­son 13,79%
  • Þórður Snær Júl­í­us­­son 12,20%
  • Birna Anna Björns­dóttir 9,39%
  • Hjalti Harð­­ar­­son 9,25%
  • Milo ehf. (Í eigu Gumma Haf­­steins­­sonar og Eddu Haf­­steins­dótt­­ur) 5,69%
  • Fagri­­skógur ehf. (í eigu Stefán Hrafn­kels­­son­­ar) 5,69%
  • Ágúst Ólafur Ágústs­­son 5,69%
  • Birgir Þór Harð­­ar­­son 2,9%
  • Jónas Reynir Gunn­­ar­s­­son 2,9%

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None