Aðkoma Hauck & Aufhäuser að sölu Búnaðarbankans verður rannsökuð

Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson leiddu S-hópinn svokallaða. Mikil áhersla var lögð á aðkomu erlends banka að kaupunum og reyndist sá á endanum vera Hauck & Aufhäuser. Það hefur lengi verið tortryggt hvort sú aðkoma hafi verið raunveruleg.
Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson leiddu S-hópinn svokallaða. Mikil áhersla var lögð á aðkomu erlends banka að kaupunum og reyndist sá á endanum vera Hauck & Aufhäuser. Það hefur lengi verið tortryggt hvort sú aðkoma hafi verið raunveruleg.
Auglýsing

Aðkoma þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum í byrjun árs 2003 verður rann­sökuð af sér­stakri rann­sókn­ar­nefnd sem mun hafa víð­tækar heim­ildir til að kalla eftir upp­lýs­ing­um. Rann­sókn máls­ins á að vera lokið fyrir árs­lok og mun einn maður skipa rann­sókn­ar­nefnd­ina. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis var sam­þykkt á Alþingi í gær með öllum greiddum atkvæð­um.

Rann­sóknin bein­ist sér­stak­lega að hlut þýska einka­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á Bún­að­ar­bank­anum í byrjun árs 2003. Rann­sóknin verður fram­kvæmd eftir ábend­ingu Tryggva Gunn­ars­son­ar, umboðs­manns Alþing­is, sem sendi  stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd bréf í síð­asta mán­uði þar sem hann lagði til að skipuð yrði rann­sókn­ar­nefnd um mál­ið. Þetta eigi að gera vegna þess að Tryggvi hafi nýjar upp­lýs­ingar sem byggja á ábend­ingum um hver raun­veru­leg þátt­taka þýska bank­ans var. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans mun rann­sóknin meðal ann­ars snú­ast um hvort Kaup­þing, sem var sam­ein­aður Bún­að­ar­bank­anum skömmu eftir að söl­una á bank­an­um, hafi fjár­magnað Hauck &Auf­häuser.

Til við­bótar er til­gangur til­lög­unnar að skapa grund­völl fyrir nán­ari afmörkun á ályktun Alþingis frá 7. nóv­em­ber 2012, um rann­sókn á einka­væð­ingu Fjár­fest­ing­ar­banka atvinnu­lífs­ins hf., Lands­banka Íslands hf. og Bún­að­ar­banka Íslands hf., sbr. ákvæði laga um rann­sókn­ar­nefndir með síð­ari breyt­ing­um."

Auglýsing

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um málið í frétta­skýr­ingu í síð­ustu viku.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None