Tvö félög sem tengjast Arev verðbréfafyrirtæki greiddu ekki hlutafé inn í sjóð sem Arev stýrir í samræmi við það sem þau lofuðu að gera. Þetta segir Gunnar Sturluson, hæstaréttarlögmaður og einn eiganda lögmannsstofunnar LOGOS, sem er nýr stjórnarformaður umrædds sjóðs, Arev NII, sem hefur verið tekinn úr stýringu hjá Arev. LOGOS hefur verið falið að tilkynna um það stofan álitur „alvarlegar misfellur í rekstri Arev NII“ til Fjármálaeftirlitsins (FME).
Hluthafar í Arev NII eru fimmtán talsins. Þar af eru ellefu lífeyrissjóðir. Hluthafar skuldbundu sig til að leggja sjóðnum til hlutafé sem kallað var eftir jafnóðum og fjárfest var samkvæmt ráðgjöf Arev verðbréfafyrirtækis. Alls átti nafnverð hlutafjár að vera tæplega 660 milljónir króna í byrjun desember síðastliðins.
Gunnar sendi frá sér fréttatilkynningu síðdegis á föstudag. Þar kom fram að á hluthafafundi fagfjárfestasjóðsins Arev NII þann 26. maí síðastliðinn hafi verið samþykkt að skipta um ábyrgðaraðila og þar með stjórn sjóðsins. Gunnar er nýr stjórnarformaður sjóðsins. Í kjölfarið rifti stjórnin samningi við Arev verðbréfafyrirtæki um eignastýringu sjóðsins. Í fréttatilkynningunni sagði: „Komið hafa í ljós alvarlegar misfellur í rekstri Arev NII og var LOGOS lögmannsþjónustu falið að tilkynna um þær til Fjármálaeftirlitsins“.
Gunnar segir í svari við fyrirspurn Kjarnans um málið að hinar alvarlegu misfellur felist í því að hluthafar sjóðsins, sem eru meðal annars ellefu lífeyrissjóðir, voru ekki upplýstir um að tvö félög í hluthafahópnum höfðu ekki staðið við hlutafjárloforð sín. „Við teljum það mjög aðfinnsluvert, sérstaklega í ljósi tengsla umræddra hluthafa við Arev verðbréfafyrirtæki sem sá um eignastýringu.“
Arev var stofnað árið 1996 og eru hluthafar þess Eignarhaldsfélagið Arev hf. (99,94 prósent) og Jón Scheving Thorsteinsson (0,06 prósent) sem jafnframt er eigandi Eignarhaldsfélagsins Arev hf.