Íbúum Íslands fjölgaði um 1.760 á öðrum ársfjórðungi 2016 og eru nú 336.060. 400 fleiri fæddust en dóu og 1.490 einstaklingar fluttu til landsins umfram brottflutta. Af þeim voru 150, eða tíu prósent, með íslenskt ríkisfang en 1.330 voru aðfluttir erlendir ríkisborgarar. Á fyrstu sex mánuðum ársins 2016 fluttu 40 fleiri Íslendingar til landsins umfram þá sem fluttu frá því. Á sama tímabili fluttu 2.440 fleiri erlendir ríkisborgarar til landsins en yfirgáfu það, sem þýðir að 98,3 prósent aðfluttra umfram brottfluttra eru útlendingar. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.
Þar segir einnig að heildarfjöldi aðfluttra til landsins frá aprílbyrjun til júníloka hafi verið 2.590. Alls fluttu 720 Íslendingar heim á ársfjórðungnum en á sama tíma fluttu hingað 1.870 erlendir ríkisborgarar. Því voru 72 prósent þeirra sem fluttu hingað á tímabilinu erlendir ríkisborgarar. Alls eru útlendingar á Íslandi nú 28.880 talsins, eða 8,6 prósent mannfjöldans.
Flestir aðfluttir ríkisborgarar á ársfjórðungnum komu frá Póllandi, en þaðan fluttu 740 manns á umræddum þremur mánuðum. Flestir Íslendingarnir sem snéru heim komu frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð, eða samtals 500 af þeim 720 sem það gerðu.
Tólf þúsund störf hurfu en 16.300 urðu til
Fjölgun erlendra ríkisborgara hérlendis er í rökréttu samhengi við fjölgun starfa, enda atvinnuleysi á Íslandi einungis 2,3 prósent, sem er töluvert frá því 4 prósenta jafnvægisatvinnuleysi sem þjóðhagslíkan Seðlabanka Íslands miðar við. Atvinnuleysið hefur ekki mælst minna frá því fyrir bankahrun. Því er ljóst að mikill skortur er á vinnuafli hérlendis.
Fyrir þau tólf þúsund störf sem töpuðust á árunum 2008 til 2010 á Íslandi hafa orðið til 16.300 ný í staðinn. Á árinu 2015 einu saman fjölgaði störfum um sex þúsund. Bróðurpartur allra nýrra starfa sem orðið hafa til á Íslandi eftir bankahrun er tilkominn vegna ferðaþjónustu og þau störf virðast ekki mæta nema að hluta til væntingum Íslendinga um starfsvettvang og starfskjör. Þess vegna virðist fjölgun starfa að miklu leyti hafa verið mætt með erlendu vinnuafli á sama tíma og fleiri Íslendingar flytja af landi brott en til landsins.
Störfum mun fjölga, en ekki fyrir Íslendinga
Í nýlegri greiningu Arion banka á vinnumarkaðnum þá og nú er bent á að þrátt fyrir þennan skort sem myndast hefur á vinnumarkaði þá flytja Íslendingar frekar úr landi, og því velt fyrir sér hvað valdi. Eitt sem spili þar inn í er aukin menntun vinnuafls, en hlutfall háskólamenntaðra á meðal starfandi einstaklinga hefur aukist úr 11 prósentum í tæp 34 prósent frá árinu 1991 til loka síðasta árs.Í greiningunni segir: „Á síðasta ári voru brottfluttir Íslendingar umfram aðflutta 1.265. Fjölgun starfa virðist því að miklu leyti hafa verið mætt með erlendu vinnuafli en á sama tíma voru aðfluttir erlendir ríkisborgarar umfram brottflutta 2.716. Auðvitað eru margvíslegar ástæður fyrir því að fólk flytur búferlum til lengri eða skemmri tíma og það er óneitanlega jákvæð þróun að fólk hafi tækifæri til að freista gæfunnar í öðru landi. Þessi þróun gefur til kynna að sú sköpun starfa sem orðið hefur síðustu ár sé enn sem komið er aðeins að hluta til að mæta væntingum Íslendinga um starfsvettvang og starfskjör.“
Niðurstaða greiningardeildar Arion banka er sú að flest bendi til þess að störfum muni halda áfram að fjölga mikið á næstu misserum. Á sama tíma sækja sífellt fleiri Íslendingar sér framhalds- og háskólamenntunar og því sé spurningin sem þjóðin standi frammi fyrir sú hvort menntunin sem Íslendingar eru að sækja sér falli að vinnumarkaðinum og umhverfi atvinnusköpunar „eða hvort texti Spilverksins muni eiga við: „Hér vantar tólin og tækin og réttu vandamálin.“ Spennandi verður að fylgjast með framvindunni á vinnumarkaði, hvort að ferðaþjónustan haldi áfram að vera leiðandi í sköpun nýrra atvinnutækifæra eða hvort aðrar atvinnugreinar taki við keflinu, og hvernig fyllt verður upp í hinar nýju stöður.“