Hlutur Lífeyrissjóðs verslunarmanna lækkað um tíu milljarða

Markaðsvirði Icelandair Group hefur lækkað um 73 milljarða á hálfu ári. Stærstu hluthafarnir eru lífeyrissjóðir landsmanna.

Icelandair - Mynd: Eric Salard
Auglýsing

Verð­mið­inn á Icelandair hefur lækkað um 73 millj­arða króna á síð­ustu sex mán­uðum en í lok dags í gær, nam heild­ar­virði fyr­ir­tæk­is­ins 115,9 millj­örðum króna. Um mitt ár var það 189 millj­arð­ar. Hlutu stærsta hlut­hafa ­fyr­ir­tæk­is­ins, Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna (LI­VE), hefur rýrnað um 10 millj­arða króna á þessu tíma­bili. Hann nú ríf­lega 17 millj­arða króna virði, en nam ríf­lega 27  millj­örðum um mitt þetta ár.

Líf­eyr­is­sjóðir stærstu hlut­hafar

LIVE er stærsti hlut­haf­inn í fyr­ir­tæk­inu með 14,69 pró­sent hlut. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eiga stóran hlut í fyr­ir­tæk­inu, en næsti stærsti hlut­haf­inn er Stefnir – ÍS 15 með 9,53 pró­sent hlut, Gildi líf­eyr­is­sjóður á 6,97 pró­sent, A-deild LSR 6,83 pró­sent og Stefnir – ÍS 5 4,9 pró­sent. Sam­tals er þetta um 43 pró­sent hlut­ur, og eiga aðrir minni hlut­hafar því 57 pró­sent hluta­fjár.

Í lok þriðja árs­fjórð­ungs þessa árs námu heild­ar­eign­ir ­fyr­ir­tæk­is­ins tæp­lega 1,2 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 150 millj­örðum króna. Eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins  var á þeim tíma 585 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða tæp­lega 700 millj­ónir króna.

Auglýsing

Óhætt er að segja að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn hér á landi hafi farið í gegnum tölu­vert sveiflu­tíma­bil að und­an­förnu, sér­stak­lega þegar horft er til stærstu félag­anna í kaup­höll­inni, Mar­els, Icelandair og Öss­ur­ar. 

Í gær ­lækk­aði Icelandair um 2,51 pró­sent og Mar­els um 1,42 pró­sent, en eins og Kjarn­inn greindi frá á dög­unum þá telja grein­endur Lands­bank­ans að Marel sé tölu­vert und­ir­verð­lagt á mark­aðnum um þessar mund­ir, þar sem rekstr­ar­horfur fyr­ir­tæk­is­ins ­séu góðar að allt bendi til þess að næsta ár verði fyr­ir­tæk­inu hag­fellt.

Úrsvals­vísi­tala mark­að­ar­ins lækk­aði um 1,02 pró­sent í gær, lækk­aði Icelandair mest allra félaga í verði í 367 millj­óna króna við­skipt­um.

Sam­hliða lækk­unum á hluta­bréfa­mark­aði hefur gengið krón­unnar styrkst nokkuð gagn­vart helstu við­skipta­mynt­um, Banda­ríkja­dal, evru og pund­i. 

Eins og sést á þessari myndi, frá Keldunni, hefur gengi krónunnar styrkst verulega á undanförnu ári. Á sama tíma hefur gengi bréfa í kauphöllinni lækkað, einkum hjá Icelandair.

Pundið kostar nú 140 krónur en það kost­aði 206 krónur fyrir ári. Evran kostar 121 krónu, en var í 150 krónum fyrir ári. Banda­ríkja­dalur kostar nú 113 krónur en kost­aði 136 krónur fyrir rúm­lega ári síð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None