Að minnsta kosti níu eru látnir og fjöldi manns slasaðist þegar vörubíl var ekið inn í mannmergð á jólamarkaði í miðborg Berlínar, á Breitscheidtplatz, nú fyrir stundu. Breska ríkisútvarpið BBC segir níu hafa farist og að minnsta kosti 50 manns hafi slasast, sumir alvarlega.
Upplýsingar eru að berast af vettvangi, en ökumaður bílsins er sagður á flótta.
Uppfært 22:00: Utanríkisráðuneytið hvetur Íslendinga, sem eru nú í Berlín, til að láta vita af sér. Í yfirlýsingu frá ráðuneyti Lilju Daggar Alfreðsdóttur, utanríkisráðherra, er þetta áréttað. „Hvetur utanríkisráðuneytið alla Íslendinga í Berlín sem ekki hafa látið aðstandendur vita af sér að gera það hið fyrsta en fjölmargir Íslendingar eru búsettir í borginni, auk þess sem margir ferðamenn eru þar að jafnaði. Þá hvetur ráðuneytið Íslendinga í Berlín til að nýta sér samfélagsmiðla til að láta vini og ættingja vita að þeir séu óhultir. Borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hafa ekki borist neinar upplýsingar sem gefa til kynna að Íslendingar hafi orðið fyrir árásinni í kvöld.
Borgaraþjónustan er í beinu sambandi við neyðarteymi þýsku stjórnsýslunnar, sem sett er á fót við atburði sem þessa, og tekur saman upplýsingar um fórnarlömb árásarinnar. Utanríkisráðuneytið hvetur alla Íslendinga sem eru á svæðinu að fylgjast vel með tilmælum yfirvalda á staðnum. Sem stendur er fólk beðið um að vera ekki að vera á ferli að óþörfu og halda sig á öruggum stöðum.
Ef aðstandendur á Íslandi hafa áhyggjur af fólki sem vitað er að er á svæðinu og ná ekki sambandi við það, eru þeir hvattir til að hafa samband við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 5459900,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Uppfært 02:50: Tólf eru nú sagðir látnir, samkvæmt fréttum breska ríkisútvarpsins BBC, og í það minnsta 48 slasaðir.
Fréttin verður uppfærð.