Ákvörðun kjararáðs verður líklega ekki snúið

Ákvörðun kjararáðs um hækkanir á launum alþingismanna, ráðherra og opinberra starfsmanna verður „að ölluml íkindum“ ekki snúið.

Benedikt Jóhannesson er formaður efnhags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Benedikt Jóhannesson er formaður efnhags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Auglýsing

Launa­hækk­unum alþing­is­manna, ráð­herra, for­seta og ann­arra opin­berra starfs­manna verður að öllum lík­indum ekki snúið af Alþingi. Bene­dikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar og for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþing­is, seg­ist ekki búast við breyt­ing­um, í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag.

„Ég býst ekki við því að hróflað verði við úrskurði kjara­ráðs, þrátt fyrir óánægju,“ er haft eftir Bene­dikt í frétt Morg­un­blaðs­ins í dag. Hann bendir á að með ákvörð­unum kjara­ráðs 29. októ­ber síð­ast­lið­inn sé verið að leið­rétta alls konar inn­grip und­an­far­inna ára.

For­menn allra stjórn­mála­flokka á Alþingi hafa hins vegar sent for­sætis­nefnd bréf þar sem nefnd­inni er bent á að fjalla um starfstengdar greiðslur til þing­manna. Fjallað var um málið í for­sætis­nefnd á mið­viku­dag og deilt um hvaða lausnir ættu að vera gerð­ar, sam­kvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins.

Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kynnti laga­frum­varp í sumar þar sem hlut­verki kjara­ráðs verður umbylt verði það sam­þykkt. Frum­varpið er nú til umfjöll­unar í efna­hags- og við­skipta­nefnd þings­ins. Í frum­varp­inu fel­ast miklar breyt­ingar á hlut­verki kjara­ráðs og mörg hund­ruð emb­ætt­is­menn og opin­berir starfs­menn verða færðir undan ákvörð­unum ráðs­ins og veittur samn­ings­rétt­ur.

Kjarn­inn hefur sagt frá því að prestar séu meðal þeirra sem vilji áfram heyra undir ákvarð­anir kjara­ráðs. Meiri­hluti efna­hags- og við­­skipta­­nefndar hefur ákveðið að taka ekki til­­lit til óska presta. Þetta kom fram í áliti meiri­hluta efna­hags- og við­­skipta­­nefndar Alþingis um breyt­ingar á lögum um kjara­ráð sem þing­­menn allra flokka sem sæti eiga á þingi nema Pírata skrifa und­­ir.

Sam­­kvæmt frum­varp­inu munu kjör bisk­­ups, vígslu­bisk­­ups, pró­fasta og presta þjóð­­kirkj­unnar ráð­­ast af samn­ingum innan kirkj­unnar í fram­­tíð­inni en þar til að sam­komu­lag hefur náðst við þjóð­­kirkj­una um nýtt launa­­fyr­ir­komu­lag mun nýtt ákvæði til bráða­birgða vera í lögum tryggja að launa þeirra verða áfram ákvörðuð af kjara­ráð­i.

Mikil umræða fór fram um laun emb­ætt­is­manna og þing­manna í aðdrag­anda kosn­ing­anna í haust. Launa­hækk­anir til þing­manna og ráð­herra tóku gildi á nýju kjör­tíma­bili. Laun Dags B. Egg­erts­son­ar, borg­ar­stjóra í Reykja­vík, voru meðal þeirra sem hefðu hækkað en borgin hefur tekið ákvörðun um að hækka ekki laun borg­ar­stjóra og borg­ar­full­trúa í takt við laun ráð­herra. Enn á þó eftir að ákveða með hvaða hætti laun borg­ar­full­trúa og -stjóra verði ákvörð­uð. Dagur er einn þeirra sem hefur gagn­rýnt hækk­anir laun­anna. Hann sagði frá­­­leitt að laun topp­anna í sam­­fé­lag­inu hækk­uðu langt umfram þær línur sem sömu toppar hafi lagt varð­andi kjara­­þróun í land­inu í nafni stöð­ug­­leika. „Þetta er órétt­látt og rangt og má ekki standa,“ sagði hann um ákvörðun kjara­ráðs.

Kjarn­inn sagði einnig frá því í sumar að í úttekt viku­rits­ins Vís­bend­ingu komi fram að laun Alþing­is­manna og ráð­herra hafi breyst lítið árið 2015 miðað við laun þerra árið 2008. Laun þeirra hafi dreg­ist aftur úr og launa­skrið þess­ara starf­stétta er ekki jafn hratt og meðal for­stjóra, banka­manna og næst­ráð­enda, þe. þeirra sem að jafn­aði eru með hæstu laun­in.

Upp­fært kl. 13:16 27. des­em­ber 2016 – Ekki var sagt frá bréfi for­manna flokk­anna í þess­ari frétt í morg­un. Því hefur nú verið bætt við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None