Geir gefur ekki kost á sér til endurkjörs

geir---orsteinsson.jpg
Auglýsing

Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, ætlar ekki að gefa kost á sér til end­ur­kjörs á næsta lands­þingi Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands sem fram fer í Vest­manna­eyjum 11. febr­úar næst­kom­andi. Geir hefur verið for­maður síðan 2007.

Guðni Bergs­son, lög­maður og fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu, er einn eftir sem gefur kost á sér í emb­ætt­ið. Sagt hefur verið frá því að Björn Ein­ars­son, for­maður Vík­ings, hafi und­an­farið íhugað að bjóða sig fram til for­manns.

Í yfir­lýs­ingu sem birt­ist á vef KSÍ í dagseg­ist Geir það vera góða stjórn­un­ar­hætti að stíga til hliðar og „kalla á end­ur­nýjun í for­ystu sam­taka eins og KSÍ“. „Eftir vand­lega íhugun hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér til end­ur­kjörs á næsta árs­þingi og bið sam­starfs­fólk í KSÍ, aðild­ar­fé­lög KSÍ og for­ystu­menn íslenskra knatt­spyrnu­fé­laga að virða ákvörðun mína og sam­ein­ast um að kjósa nýjan for­mann íslenskri knatt­spyrnu til heilla. Ég er stoltur af starfi mínu og fram­lagi til íslenskrar knatt­spyrnu og hef ávallt haft hags­muni heild­ar­innar í huga.“

Auglýsing

Í við­tali í útvarps­þætt­inum Akra­borg­inni á X-inu síð­degis í dag sagð­ist Geir vera full­viss um að hann hefði unnið for­manns­slag­inn á móti Guðna Bergs­syni. Þar sagð­ist hann hafa fundið fyrir miklum stuðn­ingi við sig innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar en að hann hafi á end­anum tekið ákvörðun sína út frá því hvað sé „hollt og gott“ fyrir hann sjálfan og knatt­spyrnu­hreyf­ing­una.

Geir hefur verið for­maður KSÍ síðan árið 2007 og undir hans for­mennsku hefur lands­liðum Íslands í knatt­spyrnu aldrei gengið eins vel. Skemmst er að minn­ast árang­urs karla­lands­liðs­ins á Evr­ópu­meist­ar­mót­inu í sumar og árang­urs kvenna­lands­liðs­ins und­an­farin ár. Áður en Geir varð for­maður sinnti hann ýmsum störfum innan KSÍ og var fram­kvæmda­stjóri frá 1997 til 2007.

Rekstur KSÍ hefur einnig verið gagn­rýndur á því tíma­bili sem hann hefur verið við stjórn­völ­inn. Árið 2009 varð fjár­mála­stjóri sam­bands­ins upp­vís að því að hafa notað greiðslu­kort KSÍ á næt­ur­klúbbum í lands­liðs­ferð og eytt miklum fjár­hæðum í áfengi og næt­ur­brölt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None