Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi alþingismaður, ráðherra og sendiherra, er látinn. Hann var 77 ára gamall. Eiður varð bráðkvaddur á heimili sínu á mánudaginn. Frá þessu er greint á vef RÚV.
Eiður lauk stúdentsprófi frá MR 1959, stundaði nám í stjórnmálafræði við háskólann í Delaware í Bandaríkjunum 1960-61, varð löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi í ensku 1962, lauk BA-prófi í ensku og enskum bókmenntum við HÍ 1967 og stundaði nám í sjónvarpsfræðum og upptökustjórn hjá ITV í London 1967 og hjá sænska sjónvarpinu 1968.
Eiður var blaðamaður og síðar ritstjórnarfulltrúi á Alþýðublaðinu 1962-67, var yfirþýðandi og fréttamaður Sjónvarpsins 1967-78 og varafréttastjóri 1971-78. Eiður skrifaði reglulega fréttapistla í American Scandinavian Review 1962-72, var fréttaritari vikuritsins Time 1965-78 og fréttaritari CBS útvarpsstöðvanna 1970-76.
Hann var alþingismaður Alþýðuflokksins í Vesturlandskjördæmi 1978-93, þingflokksformaður Alþýðuflokksins 1983-91 og umhverfisráðherra og samstarfsráðherra Norðurlandanna 1991-93. Hann var sendiherra Íslands í Osló í Noregi 1993-98, fyrsti skrifstofustjóri Auðlinda- og umhverfisskrifstofu utanríkisráðuneytisins 1998-2001, aðalræðismaður Íslands í Winnipeg í Kanada 2001-2002 og sendiherra Íslands í Kína 2002-2006 og skrifstofustjóri menningarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins 2006. Hann var aðalræðismaður Íslands í Færeyjum 2007 og var fyrsti diplómatíski embættismaður annars ríkis í Færeyjum. Hann lét af störfum í utanríkisþjónustunni í ársbyrjun 2009.
Eiður stjórnaði gerð fjölda heimildarkvikmynda og þýddi útvarpsleikrit og útvarpssögur. Hann sat m.a. í stjórn Skátafélags Reykjavíkur 1959-60, Fulbright stofnunarinnar 1964-69, Blaðamannafélags Íslands 1968-73 og var formaður þess 1971-72. Eiður var formaður Skátasambands Reykjavíkur 1988-89.
Eiður hélt úti vinsælu bloggi í meira en tíu ár, Molar um málfar og miðla, þar sem hann fjallaði um efnistök og málfar fjölmiðla.