Eiður Svanberg Guðnason látinn

Eiður Guðnason
Auglýsing

Eiður Svan­berg Guðna­son, fyrr­ver­andi alþing­is­mað­ur, ráð­herra og sendi­herra, er lát­inn. Hann var 77 ára gam­all. Eiður varð bráð­kvaddur á heim­ili sínu á mánu­dag­inn. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Eiður lauk stúd­ents­prófi frá MR 1959, stund­aði nám í stjórn­mála­fræði við háskól­ann í Delaware í Banda­ríkj­unum 1960-61, varð lög­giltur dóm­túlkur og skjala­þýð­andi í ensku 1962, lauk BA-­prófi í ensku og enskum bók­menntum við HÍ 1967 og stund­aði nám í sjón­varps­fræðum og upp­töku­stjórn hjá ITV í London 1967 og hjá sænska sjón­varp­inu 1968. 

Eiður var blaða­maður og síðar rit­stjórn­ar­full­trúi á Alþýðu­blað­inu 1962-67, var yfir­þýð­andi og frétta­maður Sjón­varps­ins 1967-78 og vara­f­rétta­stjóri 1971-78. Eiður skrif­aði reglu­lega fréttapistla í Amer­ican Scand­in­av­ian Review 1962-72, var frétta­rit­ari viku­rits­ins Time 1965-78 og frétta­rit­ari CBS útvarps­stöðv­anna 1970-76. 

Auglýsing

Hann var alþing­is­maður Alþýðu­flokks­ins í Vest­ur­lands­kjör­dæmi 1978-93, þing­flokks­for­maður Alþýðu­flokks­ins 1983-91 og umhverf­is­ráð­herra og sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­land­anna 1991-93. Hann var sendi­herra Íslands í Osló í Nor­egi 1993-98, fyrsti skrif­stofu­stjóri Auð­linda- og umhverf­is­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins 1998-2001, aðal­ræð­is­maður Íslands í Winnipeg í Kanada 2001-2002 og sendi­herra Íslands í Kína 2002-2006 og skrif­stofu­stjóri menn­ing­ar­mála­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins 2006. Hann var aðal­ræð­is­maður Íslands í Fær­eyjum 2007 og var fyrsti diplómat­íski emb­ætt­is­maður ann­ars ríkis í Fær­eyj­um. Hann lét af störfum í utan­rík­is­þjón­ust­unni í árs­byrjun 2009. 

Eiður stjórn­aði gerð fjölda heim­ild­ar­kvik­mynda og þýddi útvarps­leik­rit og útvarps­sög­ur. Hann sat m.a. í stjórn Skáta­fé­lags Reykja­víkur 1959-60, Ful­bright stofn­un­ar­innar 1964-69, Blaða­manna­fé­lags Íslands 1968-73 og var for­maður þess 1971-72. Eiður var for­maður Skáta­sam­bands Reykja­víkur 1988-89. 

Eiður hélt úti vin­sælu bloggi í meira en tíu ár, Molar um mál­far og miðla, þar sem hann fjall­að­i um efn­is­tök og mál­far fjöl­miðla.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None