Mögulegt að skipulagning hryðjuverka fari fram á Íslandi

Tveir menn með tengsl við hryðjuverkasamtök hafa sótt um að koma til Íslands.

brussel hryðjuverk
Auglýsing

Tveir sem sótt hafa um alþjóð­lega vernd hér á landi reynd­ust tengj­ast hryðju­verka­sam­tök­um, en komu hingað á árunum 2015 og 2016, sam­kvæmt skýrslu grein­ing­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra sem birt var 30. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Þeir eru farnir úr land­inu en ekki eru gefnar upp frek­ari upp­lýs­ingar um menn­ina og hvaða sam­tökum þeir tengd­ust.

Í skýrsl­unni segir enn fremur að Ísland hafi verið stoppi­stöð manna sem fara frá Norð­ur­-Am­er­íku til bar­daga­svæða þar sem hið svo­nefnda íslamska ríki berst.

Auglýsing

Mesta ógnin í Dan­mörku

Sé sér­stak­lega vikið að Norð­ur­lönd­unum er sagt í skýrsl­unni að mesta hættan sé í Dan­mörku. Hún er „einkum tal­in stafa af her­­ská­um íslam­ist­um“ og að yf­ir­völd þar hafi vax­andi áhyggj­ur af rík­­is­­borg­­ur­um sem snúa heim eft­ir að hafa tekið þátt í bar­­dög­um í nafni hryðju­verka­­sam­­taka.

  • Í Dan­­mörku er hætt­u­­stig nú metið á fjórða þrepi á fimm stiga kvarða og telst hryðju­verka­ógn­in áfram al­var­­leg þar í landi.
  • Í Nor­egi er talið að óvissa fari vax­andi og að „hætta á hryðju­verk­um íslam­ista í land­inu sé til stað­ar.“
  • Í Sví­þjóð er hætt­u­­stig nú metið á þriðja þrepi á fimm stiga kvarða og það hækk­aði í mars á síð­asta ári
  • Í Finn­landi var hryðju­verka­ógn síð­ast met­in í lok árs 2015. Þá var hætt­u­­stig hækkað úr mjög lágu í lágt.

Grein­inga­deildin metur að hættu­stig á Íslandi sé í með­al­lag­i. 

Byggt er á upp­lýs­ingum frá nor­rænum sam­starfs­að­ilum og skýrslum Evr­ópu­lög­regl­unn­ar, Europol og fleir­um. Hættu­stig í með­al­lagi skil­grein­ist svona:  „Al­mennt er talið að ekki sé hægt að úti­loka hættu á hryðju­verkum vegna ástands inn­an­lands eða í heims­mál­u­m.“

Ógn í Evr­ópu sífellt til staða

Evr­ópu­lög­reglan telur að óryggisógnir fari vax­andi í álf­unni og að hryðju­verk sem unnin voru í Evr­ópu á árinum 2015 til 2016 gefi til kynna breyttan ásetn­ing, skot­mörk, aðferðir og getu islamskra hryðju­verka­manna. 

Almennt er erfitt fyrir lög­reglu og yfir­völd að fylgj­ast náið með hryðju­verkógn og meta hverju sinni hvaðan hún kem­ur. Grein­ing­ar­deildin telur ekki úti­lokað að hér á landi fari fram skipu­lagn­ing hryðju­verka í öðru landi og tekur virkan þátt í alþjóð­legri sam­vinnu um þau mál­efni.

Áhersla er lögð á það í skýrsl­unni að lög­reglu­yf­ir­völd hafi sömu heim­ildir hér á landi eins og tíðkast í öðrum löndum til að hægt sé að auka öryggi og rann­saka mögu­legar ógn­an­ir. Þetta sé grund­vall­ar­at­riði, sem þurfi að huga að.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None