Hópur stjörnufræðinga hefur fundið einstakt sólkerfi sjö reikistjarna á stærð við Jörðina, þar af þrjár sem gætu haft fljótandi vatn á yfirborði sínu, í kringum stjörnuna TRAPPIST-1. Greint er frá uppgötvuninni á þessu í nýjasta hefit tímaritsins Nature og sagt er frá á vefsíðu ESO . Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, greindi frá uppgvötuninni á blaðamannafundi sem stendur nú yfir.
Á Stjörnufræðivefnum, þar sem Sævar Helgi Bragason skrifar, segir að TRAPPIST-1 sé rauð dvergstjarna, aðeins 8 prósent af massa sólar eða „örlítið stærri en Júpíter, í 40 ljósára fjarlægð frá Jörðinni í stjörnumerkinu Vatnsberanum. Stjarnan er aðeins tæplega 2600°C heit, helmingi kaldari en sólin okkar,“ segir í skrifum á Stjörnufræðivefnum.
Reikistjörnurnar nefnast TRAPPIST-1b, c, d, e, f, g og h, í röð frá móðurstjörnunni. Þær eru allar álíka stórar og Jörðin og Venus, hugsanlega örlítið minni. „Brautir reikistjarnanna eru ekki mikið breiðari en brautir Galíleótungla Júpíters og mun minni en braut Merkúríusar í sólkerfinu. TRAPPIST-1 er hins vegar lítil og köld stjarna sem þýðir að orkan sem berst til reikistjarnanna er álíka mikil og innri reikistjörnurnar í sólkerfinu okkar fá frá sólinni. TRAPPIST-1c, d og f fá álíka mikið magn sólarljóss og Venus, Jörðin og Mars hver fyrir sig,“ segir Sævar Helgi á Stjörnufræðivefnum.