Tíu viðskiptahugmyndir og viðskiptaáætlanir hafa verið valdar til þátttöku í Gullegginu 2017. Frumkvöðlakeppnin er haldin árlega af Icelandic Startups í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands, Bifröst og Listaháskóla Íslands.
Alls bárust 123 viðskiptahugmyndir í keppnina, þar af 45 mótaðar viðskiptaáætlanir og valdi 100 manna rýnihópur hugmyndirnar til þátttöku í þessari stærstu frumkvöðlakeppni á Íslandi. Rýnihópurinn var skipaður konum og körlum til jafns.
Allir þátttakendur hafa sótt vinnusmiðjur undanfarnar vikur þar sem þeir hafa fengið leiðsögn og fræðslu til að þróa hugmyndir og áætlanir sínar áfram.
Teymin á bak við hugmyndirnar tíu munu kynna hugmyndir sínar fyrir dómnefnd Gulleggsins 11. mars næstkomandi. Dómnefndin verður skipuð fjárfestum og reynsluríkum stjórnendum fyrirtækja. Lokahóf Gulleggsins fer fram í Hörpu síðar sama dag þar sem verðlaun verða veitt.
Tíu stigahæstu hugmyndirnar hafa nú verið valdar
- Barnamenningarhús - Samastaður barnamenningar á Íslandi, staður þar sem börn geta upplifað ólíkar listgreinar og fengið útrás fyrir sköpunarþörfina á sínum forsendum.
- BlissApp – Samskiptaapp fyrir fólk sem notar óhefðbundin tjáskipti.
- Eiderway, undir vörumerkinu S. Stefánsson & Co. - Tískufyrirtæki með áherslu á æðardúnseinangraðan útvistarfatnað.
- Fjölskyldumyllan - Ráðgjafafyrirtæki sem fræðir og ráðleggur foreldrum um allt það er kemur að uppeldi barna og unglinga.
- HappaGlapp - App sem gefur! Skafmiðaleikur í gegnum smáforrit.
- Lab Farm - Sharing computational resources through the academic community.
- League Manager - Tournament management through a mobile application.
- Procura Home - Vefrænt sölu- og verðmatskerfi fasteigna.
- Project Monsters - Video game designed to speed up skill acquisition.
- SAFE Seat – Fjaðrandi bátasæti sem verndar hryggsúluna í erfiðu sjólagi.
Gulleggið fór fyrst fram árið 2008 en frá þeim tíma hafa um 2500 hugmyndir borist í keppnina. Fjölmörg fyrirtæki sem náð hafa eftirtektarverðum árangri hafa stigið sín fyrstu skref í Gullegginu. Þar á meðal má nefna Meniga, Karolina Fund, Videntifier, Clara, Controlant, Nude MagaSolid Clouds, Radiant Games, Betri svefn, Pink Iceland, o.fl.